Kirkjuritið - 01.06.1945, Qupperneq 24
211
Prestastefnan.
Júní-Júli.
18. Hálsprestakall í Suður-Þingsyjarprófastsdœmi. Þar hefir
séra Björn O Björnsson verið settur prestur fyrst um sinn.
Eru þannig alls 18 prestaköll óveitt eða tveim færra en síð-
astliðið ár. í sjö þessara prestakaila eru settir prestar en ellefu
er ])jónað af nágrannaprestum.
Byggingar nýrra kirkna hafa ekki verið hafnar á árinu. Veld-
ur þar sízl um tómlæti eða áhugaleysi safnaðanna i þessum
málum, heldur hin mikla dýrtið og erfiðleikar á útvegun bygg-
ingarefnis
Lokið var á árinu byggingu Staðarstaðarkirkju á Snæfells-
nesi og var hún vígð af mér þann 27. maí s.l. Kirkjan er stein-
kirkja með forkirkju og turni, myndarlegt luis. Mun lnin hafa
kostað 70—80 þúsund krónur. Sýnir það mætavel áhuga og fórn-
fýsi manna og skilning þeirra á nauðsyn kirkjubygginga, að
kirkja þessi mun nú uppkomin vera skuldiaus og eiga jafnvel
nokkra fúlgu í sjóði. Mest er þetta fé fengið með frjálsum sam-
skotum og gjöfum einstakra manna.
Hinn 24. september f. árs vígði ég kirkju að Innri-Njarðvík á
Reykjanesi. Söfnuðurinn ákvað fyrir nokkru að endurbyggja
liina fornu Njarðvikurkirkju, er ekki hafði verið messuliæf um
mörg undanfarin ár, en veggir hennar voru stæðilegir og gerðir
úr tilhöggnu rjóti. Var þá og jafnframt endurreist hin forna
Njarðvíkursókn.
Hinn fámenni söfnuður hefir sýnt afarmikinn áhuga og fært
lofsverðar fórnir til þess að endurbyggja kirkju sina, sem nú er
orðin hið myndarlegasta guðshús.
Hellnakirkja á Snæfellsnesi má heita fullgjör og verður vígð
nú í sumar. Þar á mjög fámennur söfnuður í hlut og því eðli-
lega lent í nokkra fjárhagsörðugleika. Er og mála sannást, að
það er ofviða, hinum fámennari söfnuðum að minnsta kosti, að
reisa viðunandi kirkjur án stuðnings frá því opinbera. Er von-
andi að nokkur styrkur til þessarar kirkju verði samþykktur
á næsta Alþingi. Kirkjubyggingunum að Melstað í Húnavatns-
prófastdæmi og að Ásólfsskála og fíeyni mun einnig væntanlega
verða lokið á þessu ári.
nílar líkur eru á þvi, að á þessu ári verði hafin smíð tveggjí
kirkna i Reykjavík, Hallgrímskirkjii og Neskirkju. Er stöðuglega
haldið áfram að vinna að framgangi þeirra mála, enda ekki
vansalaust, að tveir af stærstu söfnuðum landsins og það i sjálf-
um Iiöfuðstaðnum séu með öllu kirkjulausir. Laugarneskirkja mun
nú fullger að mestu að utan og stór salur i kjallara hennar þegar
tekinn til afnota fyrir guðsþjónustur.