Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 32
222
Prestastefnan.
Júní-Júlí.
Af kristilegum samkomiun og mótum, er liáð voru á árinu, má
nefna:
Kristilegt mót í SvarfaSardal í öndverðum júlímánuði s. I. og
almennan l'und presta, kennara og leikmanna, er háður var á
Akureyri í september.
Ennfremur var liinn 13. ágúsl s.l. mjög fjölmenn kirkjuhátíð
aS Hólum í Hjaltadal til minningar um Jón biskup Arason.
Vígslubiskupinn í Skálholtsbiskupsdæmi, séra Bjarni Jónsson,
prédikaði en Brynleifur Tobíasson menntaskólakennari, SigurS-
ur SigurSsson sýslumaSur og fleiri fluttu þar erindi og ræSur.
Var ákveSiS að halda framvegis kirkjudag ár hvert aS IIól-
um og til þess valinn siuinudagiirinn i 17. viku sumars.
Tvö barnalærdómskver hafa komið út á árinu. Nefnist annað
þeirra Vegurinn og er eftir séra Jakob Jónsson. Hitt er eftir
séra Guðmund prófast Einarsson á Mösfeelli, og er að mestu
sniðið eftir barnalærdómskveri séra Helga Hálfdánarsonar lekt-
ors, en þó með ýmsum úrfellingum og breytingum.
Það er vissuilega þarft verk, að prestarnir geri tilraunir til
])ess að semja slíkar handbækur við fermingarundirbúning barna,
því að á þeim er enn tilfinnanlegur skortur. Reynslan ein verð-
ur svo að skera úr því, hverjar slíkra bóka reynast lieppilegastar
og vinsælastar þegar tekið er að nota þær.
Kirkjuritið hefir komið út í sama formi og undanfarin ár
og flutt margar góðar greinar að vanda.
Kirkjublaðið hefir komið út hálfs mánaðarlega eins og und-
anfarið auk vandaðs jólaheftis.
Kaupendafjöldi þess mun nú vera kominn nokkuð á 4. þús-
und og fer stöðugt vaxandi. Nokkrar sóknarnefndir, sem blaðið
liefir verið sent til i því skyni, að þær önnuðust sölu þess og
öfluðu því kaupenda hafa enn eigi gert afgreiðslunni skil, þrátt
fyrir tilmæli um það i blaðinu. Væri æskilegt, að sóknarprestar
vildu koma að máli við þær sóknarnefndir og sjá um, að skil
yrðu gerð af þeirra liálfu hið ailra fyrsta. Skrá yfir þessar sókn-
arnefndir geta prestarnir fengið að sjá lijá mér, cf þeir óska.
Á þeim tíma, siðan Kirkjublaðið hóf göngu sína, hefir þörf
kirkjunnar á slíku blaði komið æ betur og betur í tjós. Og liinn
vaxandi lcaupendafjöldi sýnir, að fólkið sjálft vill eiga og iesa
kirkjulegt blað, þó ýmsir væru dauftrúaðir á það í fyrstu, að
slíkt blað mundi fá stóran iesendahóp.
Fram til þessa hefir ritstjórn og afgreiðsia blaðsins, að miklu
leyti, verið hjáverka og frístundastarf og þess vegna ekki verið
hægt að ieggja neina verulega vinnu í það að útbreiða blaðið.