Kirkjuritið - 01.06.1945, Side 33

Kirkjuritið - 01.06.1945, Side 33
Kirkjuritið. Prestastefnan. 223 En á þessum tímum blaðaflóðs og blaðasamkeppni verður eigi bjá slíku komizt. Margar sóknarnefndir og einstaklingar hafa þó unnið ágætt starf í því ei'ni, er ekki verður fullþakkað. Sum- ii' sóknarprestar hafa og sýnt þessu máli mjög mikinn áhuga og skilning. Og til eru þeir prestar, sem látið hafa á sinn kostn- að senda blaðið heim á hvert einasta lieimili i sóknum sínum. Um leið og ég þakka þann mikla áhuga, vil ég mælast til þess, að þér prestarnir liver í sínu prestakalli, vinnið ötullega að aukinni útbreiðslu blaðsins, því á þvi leikur ekki vafi, að kirkju- legt blað, sem helzt á lesendur á hverju heimili landsins, mun reynast ekki aðeins liinn öruggasti málsvari kirkju og kristni á komandi tíð, lieldur einnig stórglæða álmga þjóðarinnár á kristi'ndómsmálunum og stuðla að jiví, að gjöra kirkjunni kleift að lirinda í framkvæmd mörgum þörfum og góðum málum. Nú, fremur en nokkurntíma áður, liorfa menn til kirkjunnar víðs- vegar um heim, og vænta frá lienni styrks og stuðnings og auk- ins starfs, að þvi göfuga markmiði að skapa heilbrigðara sam- líf og batnandi heim. Af bókum kristilegs og' siðferðilegs efnis, sem út hafa komið á árinu má einkum nefna: 1. Þér eruð Ijós heimsins eftir séra Björn Magnússon prófast á Borg. 2. Þor of/ þróttur eftir prófessor Ásmund Guðmundsson. Ennfremur hefir komið út úrval af ljó.Sum Hallgrims Péturs- sonar Hallgrimsljóð, snotur bólc og liandhæg. Þá liefir Tónlistarfélagið gefið út vandaða útgáfu, er nefnist Kvæði og rimur eftir Hallgrím Pétursson ásamt formála og æfi- sögu skáldsins eftir séra Vigfús prest Jónsson í Hítardal (170(5 —177(5). Loks er að geta hins mikla og stórfenglega tónverks Björgvins Guðmundssonar tónskálds: Friður rí jörðu. Þetta er óratorió yfir hinn gullfallega kvæðaflokk Guðmundar skálds Guðmunds- sonar „Friður á jörðu“. Útkoma þcssa stóra og fullkomna tón- verks verður liiklaust að teljast merkur viðburður og sennilegt, að mörg þessara laga verði sungin í kirkjum landsins við liá- tíðleg tækifæri. Stofnun kirkjukóra víðsvegar liefir einmitt gjört það kleift fremur en áður, að æfa söng stærri tónverka. Annað íslenzkt tónskáld, Sigurður Þórðarson söngstjóri Karla- kórs Reykjavíkur, liefir einnig samið mjög umfangsmikið og fagurt tónverk, er hann nefnir Hátíðamessu. Var meginhluti hennar fluttur af Karlakórnum hér i Reykjavík í sambandi við fimmtugsafmæli tónskáldsins á síðastliðnum vetri. Og nokkru

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.