Kirkjuritið - 01.06.1945, Qupperneq 49
Kirkjuritið.
Efili frjálslyndis.
239
Höfundur Fóstbræ&rásögu iiefir með einni setningu
gefið frjálslyndum mönnum innan íslenzkrar kristni eina
fegurstu stefnuskrá, sem unnt er að hugsa sér, í einni
einustu setningu: „Kristur liefir kristna menn sonu sína
g'ert, en eigi þrséla. En það mun liann hverjum gjalda,
er til vinnur“. Réttur og' ábvrgð liins frjálsa Kristsvinar
er þarna hvorttveggja fram tekið. — íslenzlc frum-
kristni og kirkja viðurkenndi réll einstaklingsins til að
Iiugsa og trúa án ytra valdboðs, þegar leyft var að blóta
á laun. Það er auðvitað alveg rétt, sem sagnfræðingar
bafa bvað eftir annað bent á, að í þessu ákvæði hafi ver-
ið einskonar miðlun milli beiðinna manna og kristinna
En saml h.efir mér fundist því of lítill gaumur gefinn,
hvaða friðindi í því fólust að mega blóta á laun. Margur
mundi segja, að ef menn blótuðu guð sinn á laun, gerði
minnst til, bvort menn væru frjálsir að því eða ekki.
En var það svo i raun og veru? Ef aðeins er litið á bið
ytra, mátti auðvitað einu gilda. En öðru máli gengdi um
bina innri lilfinningu eða trúarlífið sjálft. Hinn forni blót-
maður, sem gekk inn í blótlund sinn lil móts við Erey
eða upp í Goðaborgina í fjallinu fyrir ofan bæinn, bann
vildi bafa í eigin meðvitund sinni andlegt frelsi til að
tilbiðja goð sín, jafnvel þótt enginn annar sæi né heyrði.
Og þetta innra frelsi viðurkenndi bin íslenzk-kaþólska
kirkja þótt hún í sínum ytri reglum yrði að flestu leyti
að hlíta valdboði Rómar.
Þetta umburðarlyndi hygg ég, að í raun og veru liafi
alltaf verið eiginlegra Islendingiun en skýlaust valdboð
í trúarefnum. Þeir hafa að þvi leyti belzt verið í ætt við
hinn rólega og gætna læriföður Páls postula, fræðimann-
inn Gamalíel, sem vildi gefa lærisveinum Jesú frjá'ls-
ræði til að prédika, þvi að það mundi á sínum tíma
koma í ljós, hvort kenning þeirra væri frá Guði eða ekki.
Og Páll frá Tarsus sýndi það siðar, að liann bafði setið
að fótum Gamalíels, þegar liann stuðlaði að því, að
aðrir menn en Gyðingar gætu öðlast inngöngu i kristna