Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 29

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 29
EINING KIRKJUNNAB í KRISTI 459 kristninnar fara saman. Daglegt líf safnaðarins sýnir það og sannar, hvort hann vill lifa eftir boði Krists að skilnaði: „Allir eiga þeir að vera eitt ... til þess að heimurinn megi trúa“. Kirkjan á að greiða veginn fyrir komu Guðs ríkis. Og þá mun einnig eining kirkjunnar og kristniboð ná fullkomnun. Þá munu leysast öll vandamál kirkjunnar, djúpið brúað, sem skilur frá Róm og sértrúarflokkar ætta að myndast. Það er einungis í Ijósi eilífðarinnar, sem vér fáum leitt sjón- um allt vandamálið mikla um einingu kirkjunnar, kröfur þess og fyrirheit. Vamaðarorð Jóhannesar skírara áttu ekki aðeins við samtíðarmenn hans, heldur eiga þau einnig við oss, sem hann mun eitt sinn ávarpa: „Ætlið ekki, að þér getið sagt með sjálfum yður: Vér eigum Abraham að föður, því að ég segi yður, að Guð mun geta vakið Abraham böm af steinum þess- um.“ En vér trúum því örugglega, að sá, sem honum er máttkari og Skírarinn boðaði, að koma myndi, sé hér hjá oss til þess að skíra oss heilögum anda og eldi. Hann sýnir oss og kirkjum vorum einu leiðina, sem fyrirheit er gefið, leiðina, sem laukst upp fyrir oss við kall hans: Vér eigum að vera eitt í sann- leika hjálpræðisins. Hann á að safna oss saman, og vér eigum uð safna saman með honum. Og svo að lokum mun verða: ein kjörð, einn hirðir. Lausleg pýSing eftir Á. G., nokkuS stytt. Þú kveikir aldrei í öðrum sálum, ef það rétt rýkur úr þinni. Hugh Redwood. * * * Lífið er löng kennslustund í auðmýkt. — Barrie. * * * Bænin er raust trúarinnar. — Home. * * * Hjartað elur hinar miklu hugsanir. — Vauvenargues.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.