Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 33

Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 33
PISTLAR 463 Og sjá ... engill Drottins steig Þau voru alein . . . (They were niður af himni og kom og velti alone . ..) „Sunday Express“. steininum frá og settist ofan á hann. (Matt. 28,2.) Þetta þarfnast ekki frekari skýringa, en er minnisvert: Foivitund. Þess er getið í íslendingasögum, að sumir voru forvitrir. Þeir vissu margt fyrir ýmist af draumum eða á annan hátt. Þetta fannst mér einkennilegt og næsta ótrúlegt í æsku minni. Nú veit ég, að það er staðreynd. Hefi um það næga vitneskju bæði af annarra frásögn og eigin reynzlu. En fátt virðist mér samt enn öllu óskiljanlegra og næstum óeðlilegra, ef vér höf- um svo frjálsan vilja, sem vér ætlum flest. Ég tek hér eitt dæmi úr nútíðinni um forsögn óorðinna hluta í draumi. Jón Pálmason, fyrrv. alþingisforseti, hermdi mér eftirfarandi nýlega: í aprílmánuði 1929 fór hann ásamt fleirum að norðan á fyrsta landsfund íhaldsmanna, sem það vor var haldinn í Reykjavík. Nóttina áður en Jón kom til höfuðborgar- innar, dreymdi hann í Borgarnesi, að hann var staddur í póst- húsinu á Blönduósi. Böðvar Þorláksson, föðurbróðir Jóns ráð- herra Þorlákssonar, var þar póstafgreiðslumaður. Afhenti hann Jóni mörg bréf, og var utanáskrift þeirra allra eins og til stóð, nema eins. Á því umslagi stóð aðeins: Tólfti íhaldsþingmaður. Ekki mundi Jón innihald bréfsins, en undirskriftin var: Edvard. á Helgavatni. (Svo hét þá bóndi á Helgavatni í Vatnsdal). Fjórum árum síðar var Jón Pálmason kosinn þingmaður Austur-Húnvetninga, sá tólfti af þeim Sjálfstæðismönnum (íhaldsmönnum), er vitnaðist, að komizt höfðu að. Þetta er að vísu hversdagslegur viðburður, því að ótal menn dreymir fyrir daglátum og mörgum vitrast margt, sem er langt undan. En af því má ráða, að margt sé fyrirhugað í tilverunni, eins og frá er skýrt í helgum ritum. Þetta sýnir líka, hve grunnt vér höfum enn kafað í djúp leyndardómanna, enda eilífðin framundan til að komast þar til botns.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.