Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 43
BLA PEBLUFESTI
473
dr. Jóns Bjarnasonar og dr. Bjöms B. Jónssonar úr hópi íslend-
inga. Sumar þýðinganna hafa einnig verið teknar upp í sálma-
bækur í Ástralíu og öðrum löndum og með þeim hætti náð til
fjölda lesenda. Má í því sambandi geta þess, að Passíusálma-
þýðingar hans voru sungnar á föstunni í fyrra vetur við guðs-
þjónustur í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, og mun það í
fyrsta skipti, að þær hafa verið opinberlega um hönd hafðar
á þann hátt.
Árið 1950 kom út á vegum Orford University Press í Mel-
bourne í Ástralíu merkilegt þýðingasafn eftir dr. Pilcher, Ice-
landic Christian Classics, sem hefir inni að halda prýðilegar
þýðingar hans á Sólarljóðum, er áður höfðu komið út í merku
canadisku tímariti og í guðfræðilegu riti höfundar í Lundúnum;
á Lilju, ódauðlegu helgikvæði Eysteins munks Ásgrímssonar;
af nokkru úrvali úr Passíusálmunum; sjö erindum úr útfararsálm-
inum „Allt eins og blómstrið eina“; og af lofsöngnum „Ó, Guð
vors lands“. Fylgir þýðandi aðalþýðingunum úr hlaði með gagn-
orðum og greinargóðum inngansritgerðum, sem eru hinum er-
lenda lesanda ágætur leiðarvísir.
En dr. Pilcher lét eigi þar við lenda. Fyrir nokkrum árum
sendi hann frá sér í fjölrituðu formi, ásamt markvísri inngangs-
ritgerð, ágæta þýðingu af hinni hreimmiklu iðrunarkviðu Jóns
biskups Arasonar, Píslargrát.
Mætti ætla, að þar væri um að ræða svanasöng hins aldur-
hnigna íslandsvinar í enskum þýðingum íslenzkra trúarljóða,
en hann á sér senn áttatíu ár að baki. Fjarri fór samt, að svo
væri, því að einmitt á 78. afmælisdegi sínum, 4. júní síðastliðn-
um, lauk hann við þýðingu sína á útfararsálminum „Allt eins
°g blómstrið eina".
í fyrsta þýðingarsafni sínu (1913) hafði hann birt fjögur vers
ur þessum frábæra sálmi, og um þær þýðingar hans fór dr. Jón
Bjarnason þessum orðum í ritdómi í Sameiningunni (Apríl,
1913);
„Sumt í versunum úr sálminum „Allt eins og blómstrið eina“,
sem hér liggur fyrir oss þýtt á ensku, er fullkomnara en í þýð-
mgu Eiríks Magnússonar, og er þá mikið sagt, því sjálfir höfum