Kirkjuritið - 01.12.1957, Síða 48
478
KIRKJUHITIÐ
EVER KNOVN. - WHY I KNOW THERE IS A GOD. - Þessi víðkunni
höfundur er aldrei leiðinlegur, og þegar honum tekst bezt upp, fer hann
á hreinum kostum. Fyrri bækumar eru saga Jesú Krists og postula hans
sagðar í nútíma ská'ldsögustíl. Mér er síðast nefnda bókin hugþekkust.
Þar eru 16 greinar eða sögubrot. Sannsögulegar frásagnir úr lífi höfundar
og annarra, sem hafa öðlazt brennandi trú og sýnt hana í verki. Margt til
vakningar og ýmsar myndir, sem geta verið góð prédikunarefni.
HALLGRÍMSKIRKJA í SAURBÆ heiti fallegt minningarkver, sem
gefið hefir verið út i tilefni vígslu þeirrar kirkju. Eru þar allmargar myndir
af kirkjunni og munum hennar. Ennfremur frá vígslunni. Prentaður er
bænarsálmur eftir séra Friðrik Friðriksson, sunginn á vígsludegi, og kvæði
eftir Þorgeir Sveinbjamarson: Við Hallgrímsstein. Loks er örstutt greinar-
gerð byggingarsögu kirkjunnar — en yfir ytri dymm hennar stendur letrað:
Þessa kirkju reisti islenzka þjóðin Drottni til dýrðar í minningu um Hall-
grím Pétursson. G. Á.
í HENDI GUÐS, prédikanir eftir Eirík V. Albertsson (Leiftur 1957). —
Dr. theol. Eiríkur Albertsson þótti mjög snjall prédikari í Borgarfirði alla
prestsskapartíð sína, og bera þessar prédikanir því glöggt vitni, að það
hefir ekki verið ófyrirsynju. Prédikanir verður að lesa hægt, lielzt ekki
nema eina í einu, og hefi ég ekki enn lokið að fullu við bókina. En ég
héfi lesið nóg til þess að mynda mér skoðanir um það, að höfundur er
allt í senn: Prýðilega lærður og gáfaður, víðsýnn og andrikur prédikari.
Vil ég nefna til dæmis um það prédikunina: Samtíð og samstarf, flutta
á héraðsfundi Borgfirðinga 1924, og „Vitranimar em leiðarljós þjóðanna"
við aldarminningu séra Matthíasar Jochumssonax 1935. Sterk áhrif frá
kennara hans, séra Haraldi Níelssyni, em auðfundin, enda þótt ekki sé
um stælingu að ræða. Sterk trú og sannfæringareldur gefur bókinni mest
gildi, og kennir fyrir það allvíða skáldlegra tilþrifa. — Hún ætti að verða
sem flestum hollur lestur nú um jólin.
LEIÐARLJÓS, eftir séra Árélíus Nielsson, við kristlegt uppeldi á heimil-
um, í skólum og til fermingamndirbúnings (Leiftur 1957). — Höfundur
ætlar bömunum að lesa Fræði Lúters hin minni samhliða kveri sínu, og
em þau prentuð áftast í því. Er bókinni ætlað að verða bömunum leiðar-
ljós á vegi kristindómsins. — Fremst í bókinni er ávarp til bamanna,
drottinleg blessun, signing og bamabænir. Þá trúarjátningin, skýrð og
studd greinum úr Nýja testamentinu, og síðan með sama hætti „Faðir
vor“ og sakramentin. Ennfremur sæluboðanir Jesú, ljóð Páls postula um