Kirkjuritið - 01.12.1957, Síða 49

Kirkjuritið - 01.12.1957, Síða 49
ÓROFA TRYGGD 479 kærleikann, heilræðavísur Hallgríms Péturssonar, skátalögin, lífsreglur og spekimál. Á víð og dreif um bókina eru spumingar, sem bömum er ætlað að hugleiða með hjálp foreldra sinna og kennara. Svör höfundar fylgja við spumingunum. Kann hann góð tök á hreinu og fögm máli, sem böm og unglingar skilja. Frágangur allur á bókinni er ágætur, og ekkert til spar- að, til dæmis em myndir litprentaðar. — Séra Árelíus hefir leyst af hendi mjög þarf verk með því að semja þessa htlu bók. Vænti ég þess, að ávext- imir verði miklir og góðir. Á. G. t--------------------------------f ------------| Tnnlendor fréttir j----------------------------- Fagrar gjafir. Kaupfélag Eyfirðinga og Samband íslenzkra sam- vinnufélaga hafa nýlega styrkt Biblíuútgáfu Hins islenzka Biblíufélags með tíu þúsund króna gjöf hvort um sig. Kærar þakkir. Góðar gjafir. Vorið 1955 vom Eskifjarðarkirkju færðar að gjöf 26 fermingarkirtlar. Verðmæti þessarar góðu og fögm gjafar skipti þúsund- um króna. Gefendumir vom tvö kvenfélög í kauptúninu, kirkjukvenfélag- ið „Geislinn“ og kvenfélagið „Döggin“. Þessi rausn og myndarskapur vakti almenna ánægju, enda auka fermingarkirtlamir mikið á hátíðleik og fegurð fermingarathafnarinnar. — Árið 1956 var skipt um orgel í kirkj- unni og það ekki að ófyrirsynju. Þetta gerðist fyrir forgöngu söngkórs kirkjunnar. Leitað var samskota hjá söfnuðinum, sem tók þeirri málaleitan svo vel, að yfirdrifið fé 'fékkst til orgelkaupanna. Orgelið, sem kom var að vísu ekki nýtt, en vandað og gott hljóðfæri. Þetta sama ár vom kirkj- unni gefnar 30 nýjar sálmabækur, og gerði það frú Guðrún Sigurðardóttir fyrrverandi sóknamefndarformaður og núverandi safnaðarfulltrúi. Og þessa indælu gjöf gaf frú Guðrún til minningar um tvo látna eiginmenn sina, Halldór Sveinsson og Guðna Sveinsson. Ennfremur gaf hún kirkjunni fagra mynd af kvöldmáltíðinni. Á síðast ’liðnu vori lét kvenfélagið „Geisl- h>n“ steypa mjög myndarlegar tröppur framan við kirkjudymar. Á þessu var mikil þörf, því gömlu tröppumar vom illa famar. Hinar nýju tröpp- ur em gjöf til kirkjunnar, ein af mörgum frá kirkjukvenfélaginu „Geislinn". Sérhver góð gjöf í þágu góðs málefnis er Guði þóknanleg. — Þ. J. Nemendur guðfræðideildar em nú alls fjömtíu talsins. Þrír nýir vom skráðir í hana á síðast liðnu hausti. Meðal nemenda em nokkrar konur.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.