Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 3

Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 3
Boðskapur páskanna guðspjall gróanilans. Páskarnir og vorið eru órjúfanlega tengd. Ekki eingöngu hvað tímann snertir, heldur flytja hvort tveggja mál eilífðar- innar og fullvissu um sigur lífsins. Vorið hefir frá örófi alda slegið á þann strenginn. „Ef hnota trésins felst í rauðri fold, þá fúnar hýðið, verður brátt að jörð. En mikil undur! upp af sömu mold vex eikarbákn, sem gnæfir yfir svörð. Seg, hvaða kraftur heldur slikan vörð? Var hnotan ekki dáin, má ég spyrja? Svo leit það út, en — lífið var að byrja. Og eikin nýja verður fagurfrjó og full af krafti, laus við bönd og gróm, og þróast stillt i þroskans vaxtarró, sem þekki vel sin nýju kjör og dóm. Ber hnotan þá ei handan að þann óm, að helið sé ei til, en það sé blundur, en síðan líf með enn þá stærra undur.“ (M. J.) Þetta hugboð vekur vorið um allar jarðir, og það er eitt af því, sem veldur þeirri staðreynd, að grunur um líf eftir dauð- ann leynist alltaf og alls staðar í mannbrjóstunum. En al- nicnn von er annað en vissa. Upprisa Jesú Krists er heimssöguleg staðfesting þess, að líf er eftir dauðann. Sá viðburður er hornsteinn kristins dóms og fjarstæða að láta orð liggja að þ ví, að það skipti ekki megin- máli, hvert sé viðhorfið til hans innan kirkjunnar. Sé grafið undan honum, er fallið framundan. 10

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.