Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 9
KIRKJURITIÐ
151
eða hcyrum þaS nefnt. . . . Kennslustundir Magnúsar Jóns-
sonar í Háskólanum munu nemendum hans líða seint úr
minni. Komu þar til greina hinar fjölþættu gáfur hans, sem
hann varð snemma þjóðkunnur af. ... Lærdómur hans var
traustur, fróðleikur hans var skemmtilega alhliða, framsetn-
ingin var létt og ljós, leiftrandi gáfur hans svo snjallar, fjör-
ið svo heillandi fyrir unga menn. . .. Innlifun hans í viðfangs-
efnin var djúptæk. Hann var stúdentunum afburða leiðsögu-
maður, hvort sem hann leiddi okkur inn í hinn dulúðga, víð-
feðma helgidóm Jóhannesarritanna, eða lét okkur ferðast um
hugarlönd Páls postula og fylgja honum á ferðum hans. Og
kennsla hans í kirkjusögunni var svo lifandi, litrik og ljós,
að með nýrri gleði settust stúdentarnir á bekki sína hvern
morgun, er hann hóf kennslu."
„Við guðfræðideild Háskóla íslands starfaði hann rúma
þrjá áratugi, og er öllum nemendum hans minnisstæð kennsla
hans. Ljós og lifandi framsetning einkenndi hana, samfara
mikilli þekkingu og djúpum skilningi á viðhorfum manna,
hvort eð heldur var um að ræða ótta Þessalónikumanna við
dauðann eða kröfur páfa til heimsyfirráða. Oft kom hann
nemendum sínum á óvart með spurningum eða viðhorfum,
sem ekki var hægt að finna í bókum. Andi hans var svo auð-
ugur, að hann gat miðlað nemendum sínum af honum óspart.
Og okkur þótti unun að finna i kennslustundum hans hið
frumlega — innblásna hugmynd, sem hann leifturhratt dró
Upp fyrir okkur. En slíkt er fáum gefið.“
En afstöðu sinni til stúdentanna lýsir hann sjálfur þannig:
„En hugljúfastar og ólýsanlegastar eru þó 30 ára minn-
ingarnar frá samstarfinu við stúdentana. Ég man þar ekki
eftir nokkru éli, nokkurri skúr, nokkru skýi, heldur er það
allt einn sólskinsdagur.“
Guðfræðisdeildin var honum friðsæll reitur. Kom það sér
vel fyrir hann í stjórnmálanæðingunum, því að innst inni
átti þessi gunnreifi maður það skaplyndi, er engin styrjöld
fylgdi, og kaus að lifa í sátt og friði við alla menn. Hann
sagði mér, að hann hefði oft beðið Guð þess, áður en ganga