Kirkjuritið - 01.04.1958, Page 18
160
KIRKJURITIÐ
en síðan um tveggja ára skeið á Isafirði. En þá varð hann,
þritugur að aldri, kennari í guðfræði í Háskóla íslands. I því
starfi hafði hann með frábærri kennslu sinni og persónuleik
mikil áhrif á hugi þeirra manna, er síðan urðu prédikarar
og þjónar kirkjunnar. Kristindómur hans var bjartur og gleði-
ríkur.
Meðal þeirra bóka, er hann samdi, eru ritverk hans um
trúarhetjurnar miklu, Martein Lúther, Pál postula og Hall-
grím Pétursson. Það er engin tilviljun, að ævisögur þeirra
bjuggu í huga hans og hann lifði með þeim reynslu þeirra
í huga sínum. Hann taldi sér þó enga þörf að binda sig í
óhagganlegum guðfræðikerfum og fagnaði því að lokum að
hafa komið sér „út yfir alla guðfræði“. En trú hans var
óhagganleg, björt og hrein í barnslegri einlægni. Þegar hann
leit yfir farinn veg sjötugur að aldri, minntist hann þess,
sem honum var ríkast í huga á þennan hátt:
„Messurnar í ísafjarðarkirkju eru eins og 1 jós, sem lýsa
mér enn í ellinni og ylja inn að hjartarótum. Það er ekki
nema einn til, sem gefur manni slíkar gjafir, alveg óverð-
skuldað.“ Og enn fremur: „Vér eigum góðan föður á himn-
um. . . . Hann stendur enn við dyrnar og knýr á og vill
hjálpa, hvar sem hans er leitað.“ Hér er perlan dýra og ekk-
ert jafnast á við að eiga hana, guðsríkið, sem býr í hjarta
mannsins. Allt annað verður „lítið og lágt“ móts við það.
Og þótt ég segi þetta, veit ég ekki til, að neitt hafi í raun-
inni verið lítið og lágt í huga þessa víðförula manns, heldur
miklu fremur, að auga hans hafi ekki verið „fest við fæð né
smæð“. Hann sá margt á ferðum sínum um lönd og þjóðir,
í hugarflugi um himna og heima, í ótrúlega víðtækum kynn-
um af bókmenntum fortíðar og nútíðar, í listum fyrri tíma
og samtimans, í kynnum af mönnum og málefnum og í marg-
víslegum störfum, sem hann var kallaður til að vinna og lagði
hug og orku í að vinna vel, því að hann kastaði aldrei hönd-
um til nokkurs starfs, heldur reyndi hann að leita sér þekk-
ingar til að geta unnið verkið svo vel sem liann bezt gat.
Hann var alltaf að nema, læra meira, unz oss, sem kynnt-