Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 26

Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 26
168 KIRKJURITIÐ Lengi ég hvorki laut þér né þig bað að leiða mig. Leið mina kaus, en loks ég bið nú, að þú leiðir mig. Ég valdi dagsins hark og heljarfár, minn hroki réði, mundu’ ei liðin ér! Þinn kraftur hefir leitt mig langan veg og leiðir hér um boðaföll og brimin voðaleg, unz birta fer og aftur kemst ég engla þeirra’ á fund, sem unni’ eg lengi fyrr, en missti’ um stund. Magnús Jónsson. Ég held, að heilladrýgsta viðleitni einstaklinga og þjóða sé haráttan fyrir betra lífi. •— Carroll Binder ritstjóri. Jafnvel þegar hinzta hljóðið, sem síðasta lífveran gefur frá sér, er dáið út, og hin kalda eilífðarþögn grúfir yfir þessum jarðarhnetti, trúi ég þvi, að andi mannsins lifi með einhverjum hætti. — Edmund A. Brasset, lœknir. Stríð er aðeins heigulslegur flótti undan vandamálum friðarins. — Thomas Mann. Hvað sem öllum minum glöpum og göllum liður, hefi ég skyldur við sjálfan mig og þann heim, sem ég lifi í. Vera má, að mér sé aldrei full- ljóst, hve þær eru mikilsverðar, en mér ber þó að lifa svo, að ég þurfi aldrei að blygðast min fyrir, hvernig ég hefi rækt þær. — Pat Frank, rit- höfundur. Sæll er sá, er hefir fundið, hver er hans köllun, hann þarf ekki að æskja meiri blessunar. -— Carlyle.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.