Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 36

Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 36
178 KIRKJURITIÐ Félagið verður því að kappkosta að afla mikils fjár eftir öðrum leiðum. Stjórn félagsins hefir til athugunar ýmsar fjáröflunarleiðir. Félaginu er ])að mikill styrkur, að sem flestir gerist félagar eða æfifélagar nú þegar eða sem allra fyrst. Hér er um að ræða mikið þjóðfélagslegt vandamál, sem stjórn félags- ins væntir, að sem flestir góðir menn vilji stuðla að sem bestri lausn á. Stjórn félagsins skipa þeir Hjálmar Yilhjálmsson, ráðuneytisstjóri, Drápuhlið 7, formaður félagsins, frú Kristrún Guðmundsdóttir, Auðar- stræti 17, gjaldkeri félagsins, frú Sigríður Ingimarsdóttir, Njörvasundi 2, ritari félagsins, Aðalsteinn Eiríksson, námsstjóri, Laugaveg 116, og Guð- mundur Gíslason, múrarameistari, Sigtúni 27. Þeir, sem óska að gerast félagar, eru visamlega beðnir að snúa sér til einhvers ofangreindra stjórnarnefndarmanna, eða sóknarpresta sinna, sem munu fúslega veita þeim viðtöku. Árgjald er kr. 50.00, en æfifélagagjald í eitt skipti fyrir öll kr. 500.00. Hjálmar Vilhjálmsson. Úr daglega lífinu. Svo virtist sem það ætti að vera sjálfgefið, að ég væri hamingjusamur. Ég átti konu og tvær dætur og var vellaunaður blaðamaður í Fleet Street. En raunar hafði hamingjan oftast sneitt hjá garði minum þessi ellefu ár, sem ég hafði verið kvæntur. Meginorsök önuglyndis míns var eflaust sú, hve ég var eigingjarn og ráðríkur að eðlisfari. Við hjónin gátum aldrei setið á sárshöfði hvort við annað. Ég var með stöðugar aðfinnslur við hana tit af öllu mögulegu. Hún hafði ekki matinn til á réttum tima, þegar ég kom heim, mér fannst hún ala skakkt upp börnin, ekki beita þau næg- um aga, og við sirifumst út af peningum. Tvisvar yfirgaf ég heimilið og bjó í leiguíbúð, en í bæði skiptin sneri ég fljótlega lteim aftur, til að freista þess að byrja á nýjan leik. Þegar taugastríðið heima bættist við langsetur við blaðið, bilaði heilsa mín. Það var fyrir þremur árum. Og í janúar síðast liðinn fór ég enn að heiman, eftir alveg sérstaklega harða rimmu á milli okkar hjónanna. Mér virtist alveg vonlaust, að hjónabandinu yrði framar við bjargað. Ég var svo nið- urbrotinn af vansælu áranna, að ég eygði engin úrræði. Hjálp Drottins kom mér ekki til hugar. Svo var það einn daginn, er ég sat að tedrykkju með vini mínum,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.