Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 42
184
KIRKJURITIÐ
urgeirsson. Hátíðin endaði með söng og bæn, síðan voru sýndar litskugga-
myndir frá fulltrúaþingi lútersku æskulýðssamtakanna.
S<'-r:i Itóbcrt Jnck ferðast nú um Bandaríkin, flytur erindi um
ísland og messar. Hefir aðsókn verið góð, og lætur hann í alla staði vel
af för sinni.
Um Intis prcKlnköll hafa þessir sótt: 1. Um Hvammsprestakall í
Dölum Ásgeir Ingibergsson guðfræðikandídat og séra Rögnvaldur Jónsson
í Súðavik. 3. Um Vatnsfjarðarprestakall séra Baldur Vilhelmsson, settur
prestur þar. 4. Um Þingvallaprestakall séra Jóhann Hannesson kristni-
boði. 5. Um Breiðabólsstaðarprestakall á Skógarströnd séra Sigurður M.
Pétursson.
Scrn Ólníur SkúInKon frá Moutain í N.-Dakota hefir verið hér
á ferð undanfarnar vikur, ásamt konu sinni og dóttur. Hefir hann prédik-
að á Akureyri og hér í Reykjavík í útvarp. Mun hann hverfa aftur til
safnaða sinna í vor. IJann nýtur mikilla vinsælda og er mjög áhuga-
samur og duglegur prestur.
.1:sItuiv<Vs«l:igur í kirkjunuin. Undanfarið hafa nokkrar kirkjur
haft sérstakar æskulýðsguðsþjónustur fyrir skólafólk og aðra unglinga.
Hafa forustumenn skólanna þá gengið í kirkju með nemendum sínum
og hlýtt messu. Þátttajca hefir verið mikil. Á boðunardegi Maríu, sunnu-
daginn 23. marz s. 1. voru slíkar guðsþjónustur í þremur kirkjum norðan
lands. Séra Lárus Halldórsson messaði i Húsavíkurkirkju og séra Sigurður
Guðmundsson í Laugaskóla í Reykjadal. Á Akureyri þjónuðu fjórir prest-
ar við guðsþjónustuna. Þangað hafði verið boðið prestshjónunum frá
Vesturheimi, séra Ölafi Skúlasyni og frú Ebbu Sigurðardóttur, ásamt
prestshjónunum frá Hálsi í Fnjóskadal, séra Sigurði Hauk Guðjónssyni
og frú Kristínu Gunnlaugsdóttur. Aðkomuprestarnir störfuðu í messunni
með sóknarprestunum á Akureyri, og flutti séra Ólafur mjög áhrifamikla
prédikun. Þörf er á, að prestar landsins sameinist um sérstakan æskulýðs-
dag á þeim tíma árs, sem skólarnir starfa. Slikur dagur mundi verða mikil
lyftistöng fyrir allt starf kirkjunnar að æskulýðsmálum.
Frá /ILKkuIýÖKiicfnd l»jórtkirkj uuiiur.
Æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunnar hefir í vetur haldið allmarga fundi og
tekið fyrir ýms mál, sem varða starfsemi meðal æskufólks. Skal hér get-
ið hins helzta:
ÆskulýSsmót. Nú hafa verið ákveðin og undirbúin átta æskulýðsmót