Kirkjuritið - 01.06.1960, Side 7

Kirkjuritið - 01.06.1960, Side 7
Ávarp frú Auðar Auðuns borgarstjóra, er lagður var hornsteinn Háteigskirkju 19. júní 1960. Á ncer þúsund ára ferli kristinnar kirkju á Islandi hefur bjóö vor allt fram aö síöustu tímum búiö viö einangrun og tíðum hörmulega fátœkt. Meöan húsageröarlist reis hvaö hæst í glœsilegum kirkju- byggingum ríkari og voldugri þjóöa, leituöu íslenzkir söfnuöir skjóls í lágreistum torfkirkjum lands vors. Þaö er eölilegt og gleöilegt tákn vaxandi velmegunar Islend- lnga, aö nú rísa hér víösvegar af grunni guöshús, veglegri og varanlegri en áöur þekktist. En kirkja Krists hefur líka e. t. v. oldrei átt mikilvægara hlutverki aö gegna en nú, á dögum kynslóöar, sem hefur náö undraveröum tökum á efninu, en Jafnframt leyst úr lœöingi slík ógnaröfl tortímingar, aö öllu viannkyni er voöi búinn. Bœjaryfirvöld ReykjavíJcur hafu fyrir sitt leyti viljaö stuöla að því, aö söfnuöir borgarinnar kæmu sér upp kirkjum. Hefur 1 bví skyni í allmörg undanfarin ár veriö lögö 1 milljón króna orlega í kirkjubyggingarsjóö, sem útlilutaö er til nýbyggingar birkna í Reykjavík. Hér rís nú uf grunni veglegt guöshús Háteigssafnaöar. Um leið og vér samgleöjumst söfnuöinum yfir þeim áfanga, sem hér er náö, og biöjum söfnuöinum og íslenzkri kirkju allri blessunar í starfi, lœt ég þá ósk í Ijós, að sá skerfur, sem Reykjavíkurbœr leggur til þessarar kirkjubyggingar, ávaxtist 1 rikum mœli á þann hátt, sem ekki veröur til fjár metinn, til eflingar kirkjulífi og kristilegu safnaöarstarfi i höfuöborg i^lands.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.