Kirkjuritið - 01.06.1960, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.06.1960, Qupperneq 28
266 KIRKJURITIÐ verjabæjarprestakalli óbreyttu um sinn. En skilyrði séra Stef- áns var aftur á móti, að hann mætti eiga heima utan presta- kallsins, nánar tiltekið hjá dóttur sinni í Hróarsholti, sem er að vísu ekki langt frá Gaulverjabæ. En af þessu gat ekki orð- ið. Þess vegna sagði söfnuðurinn á tímabili skilið við þjóð- kirkjuna og stofnaði Fríkirkjusöfnuð. Var það, eins og skjöl herma, 5. nóv. 1908 og fram til ársins 1916. Prestur hans var ráðinn Runólfur Runólfsson, hafði hann verið í Vesturheimi og hvarf þangað aftur, eftir að sóknin sameinaðist aftur Þjóð- kirkjunni og séra Gísli Skúlason sóknarprestur í Stokkseyrar- prestakalli tók þar við prestsstörfum. í meira en sjö aldir a. m. k. var Gaulverjabær prestssetur. Þar hafa setið um það bil 34 prestar, sá fyrsti er lítt kunnur, hann mun hafa heitið Gunnar, föðurnafnið er ekki vitað, en hann mun hafa verið prestur í Gaulverjabæ einhvern tíma á árunum fyrir 1193. Annars er margt ógreinilegt og þoku hulið um presta fyrstu aldanna, allt fram undir siðskiptin. Seinasti presturinn, sem sat í Gaulverjabæ, var séra Einar Pálsson, er siðar varð prestur í Reykholti. Eftir bréfum að dæma, fer hann aðallega frá Gaulverjabæ vegna laga um nýja skipun presta- kalla. Milli séra Gunnars og séra Einars eru allir hinir prest- arnir mismunandi langan tíma, eins og gengur og gerist. Lengst þjónaði séra Jakob Árnason eða nálægt 56 ár, að vísu með að- stoðarprest seinustu árin. En stytzt sat í Gaulverjabæ séra Jón Steingrimsson, í 3 ár. Hann vígðist að Gaulverjabæ 6. nóv. 1887, en andaðist 20. maí 1891, aðeins 28 ára að aldri. Séra Jón var stórgáfaður, einstakt ljúfmenni, fríður sýnum og fyrir- mannlegur. Hann lét reisa íbúðarhús það, er nú stendur í Gaul- verjabæ. Auk þess kom hann á fót barnaskóla í hreppnum, meðal annars naut prófessor Ásgrímur Jónsson listmálari þar kennslu. Samkvæmt prestatali hafa 37 prestar, að undanteknum nú- verandi sóknarpresti, gegnt þjónustu að Gaulverjabæ. Ef tekið er meðaltal þjónustuára prestanna frá siðskiptum, kemur í Ijós, að það er nálægt 22 ár. Gaulverjabær var alltaf mjög eftirsótt prestakall. Jörðin mikil og góð og prestakallið fjölmennt lengi vel. Þar sem undir það heyrði Stokkseyrarsókn á Eyrarbakka (eins og segir i gömlum skjölum), þ. e. a. s. nú Stokkseyrar- og Eyrarbakka-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.