Kirkjuritið - 01.06.1960, Síða 31
KIRKJURITIÐ
269
bróðir Brynjólfs, sammæðra. Enda naut Torfi frændseminnar
í mjög ríkum mæli. Brynjólfur biskup studdi hann með ráð-
um og dáð hér heima og erlendis. Torfi var 1 ár kennari við
Skálholtsskóla og a. m. k. 3 ár kirkjuprestur í Skálholti. Síðar
fékk hann veitingu fyrir Rafnseyrarprestakalli. Má vera, að
foreldrar hans hafi viljað hafa hann nærri sér. En hér réði
Brynjólfur biskup meiru. Hann vildi hafa þennan gáfaða frænda
sinn nálægt sér, og auk þess var Gaulverjabær að losna.
Árið 1650 var séra Torfi skipaður þar prestur. Prófastur
Árnessprófastsdæmis var hann 1661—1688. Séra Torfi var
mikilsvirtur merkisklerkur og kemur töluvert mikið við sögu
kirkjunnar á íslandi um og eftir miðbik 17. aldar. Hann var
svo að segja önnur hönd Brynjólfs biskups. Örar samgöngur
hafa þá verið milli Skálholts og Gaulverjabæjar. Alltaf var
leitað til séra Torfa með hin og þessi vandræði úr biskups-
garði, þau voru sannarlega mörg í heimilislífi biskupsins. Séra
Torfi lét gera útför Brynjólfs biskups mjög veglega og flutti
sjálfur aðalræðuna. Hann samdi og snilldarlega vel gerða ævi-
sögu Brynjólfs biskups. Hún er mikill og góður minnisvarði
um hinn látna biskup, en ekki síður sýnir hún, hversu öll
mennt og menning var höfundinum hugstæð.
Kona séra Torfa hét Sigríður Halldórsdóttir. Hún ásamt frú
Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu erfðu eftir Brynjólf bisk-
UP íslenzkar bækur, sögur og ýmsar fræðibækur. Sumt af
Þeim bókum erfði séra Halldór Torfason, sem varð prestur í
Gaulverjabæ eftir föður sinn. Kona séra Halldórs hét Þuríður.
Síðar eftir lát séra Halldórs fékk Árni Magnússon margt hand-
Hta frá Gaulverjabæ og án efa þá mörg úr búi Brynjólfs
biskups.
Séra Torfi var mjög vel efnaður af erfðum. Hann var ein-
birni og svo erfði hann Brynjólf biskup að stórum hluta. Sagt
er> að sá arfur hafi ekki fært honum hamingju. En eitt er
vist, mikið af arfinum eyðilagðist í eldsvoða í Hraungerði 1679,
en þá jörð hafði séra Torfi fengið til umráða og hugðist njóta
Þar elliáranna, en öðruvísi fór. Heilsu hans hnignaði og heim-
ihsgaefu.
Einn presturinn í Gaulverjabæ hafði áður verið skólameist-
í Skálholti og það lengur en nokkur annar, eða nálægt 34
ar- Var þetta séra Bjarni Jónsson. Hann var mikilsvirtur lær-