Kirkjuritið - 01.04.1962, Side 16
KIRKJURITIÐ
158
skákli og galdramanni Eiríkssyni í Gvendareyjum. A Þormóður
að hafa unnað Lopti mikið og bendir til þess vísa þessi:
Á hugann stríðir ærið opt
óróleiki nægur,
síðan eg missti hann litla Lopt,
er löng mér stytti dægur.
Hefur Þormóður vísast ort vísuna, eftir að hann kom Lopti í
Hólaskóla 1716. Vera má að Loptur hafi áður lært lijá Hannesi
prófasti Halldórssyni í Reykholti, bróður séra Jóns sagnfræðings
í Hítardal. Bendir til þess bréf, sem séra Hannes skrifaði Lopti
eftir að hann útskrifaðist, J>ar sem prófastur lýsir mikilli vinsemd
í garð hans og leyfir honum að „svo mikið sem mig ábrærir og
konunglegt lögmál leyfir, að þér yðar studiis til frekari ávaxtar
iðkið ineð prédikun og framburði guðs h(eilögu) orða af pré-
dikunarstólnum opinberlega fyrir söfnuðinum á hentugum tíma,
þó svo, að þér óskið leyfis yðar sóknarprests líka þar til, hvað
eg vona að liann muni yður ekki misunna“. Hefur Loptur þá, að
því er H. Þ. gizkar á, verið á Leirá.
En svo stóð á því, að eðlilegt var að Loptur færi fremur í Hóla-
en Skálholtsskóla, að Steinn biskup Jónsson á Hólum liafði áður
verið prestur á Setbergi og h'klegt að vinátta liafi verið með
lionum og Þormóði fóstra Lopts.
Loptur mun hafa kunnað sittlivað fyrir sér þegar í skólann
kom, sakir fræðslu fóstra síns. En alls konar kukl og forneskja
lá Jiá í landi og ekki Jiarf að þeim sökum að spyrja, að skólapiltar
hafa ekki verið eftirbátar á því sviði, Jiótt biskup og kennarar
teldu slíkt hinn mesta ósóma. Meðal skólabræðra Lopts voru líka
nokkrir, sem haft munu sem hann nokkra galdrakunnáttu í nesti,
er þeir fóru að heiman. Eru fjórir belzt tilnefndir. Þeir Skinna-
staðabræður Einar og Ari, svnir séra Jóns prests greipaglennis
Einarssonar galdrameistara, og tveir fóstursynir Páls Vídalíns
lögmanns, Jón Sigurðsson, síðar prófastur á Eyri í Skutulsfirði,
og Jón Grunnvíkingur Olafsson. Hafa þessir piltar sennilega
magnað liver annan og Loptur Jiótt vera Jieirra slyngastur og
áræðnastur. G. K. hermir að Jieir Ari og Einar ásamt Jóbanni
Kristjánssyni, síðar presti á Mælifelli, hafi aðstoðað Lopt, Jiegar
liann særði Gottskálk biskup grimma Nikulásson upp úr gröfinni
og hugðist ná af lionum Gráskinnu. Og á Jóbann að bafa verið