Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 22

Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 22
164 KIRKJURITIÐ Illt er til þess að lmgsa, að slíkur niaður sem Luthuli skuli vera haldinn í fjötrum. Það er næg sönnun þess, að kristin- dómurinn hefur alltaf átt erfitt uppdráttar, jafnvel meðal „kristinna“ manna sjálfra. En þó enn skýrara tákn þess, að herða þarf baráttuna fyrir boðskap meistarans um allar jarðir. Hér er rétt að benda á ummæli Lutlmlis um kristniboðið: „Ef kristniboðarnir liefðu ekki komið til sögunnar, stæðum vér ekki í þeirn sporum, sem vér stöndum. Þeir færðu oss skóla, breyttu við oss sem jafningja sína og studdu oss til þroska og framgangs. Nú er svo komið, að vér þörfnumst samt trúboða, sem uppfylla betur kröfur tímans, taka meiri þátt í lífi fólksins og skoða oss sem jafningja sína á livaða sviði sem er. Það kemur aldrei sá tími, að vér þörfnumst engra nýrra trúboða, ef þeir eru aðeins af liinni réttu tegund“. Mestu og beztu trúboðarnir eru þó menn eins og Luthuli sjálfur. Og þeirra er þörfin í öllum löndum beimsins og innan allra trúarbragða. Prcstaskortur gerir nú víða vart við sig, eins og áður befur verið vikið að bér í ritinu. Sænska kirkjuritið — Vár kyrka — víkur nýlega í leiðara að honum með því að segja þessa sögu, sem fullyrt er að gerst bafi á Suður-Englandi ekki alls fyrir löngu: . . . Prestaskorturinn var ískyggilegur í biskupsdæmimi. Bisk- upinn og ráðgjafar bans voru margmæddir og veltu málinu vandlega fyrir sér. Einkum festu þeir augun við fjármála- bliðina. Voru nokkur veruleg ráð til að liækka launin? Nú, ekki var með öllu útilokað að bæta þau á einstaka stað, býsa betur á sunmm öðrum, afla ögn ríkari aukatekna annarsstaðar og fá líka með tímanum fram endurbætur á sjálfri launalög- gjöfinni. Því hér var sannarlega liætta á ferðum. Þannig konmst þeir að nokkuð jákvæðri niðurstöðu á pappírnum. Óneitanlega sýndist útlitið ögn bjartara. Samt var dálítill uggur í öllum. Blessaður tesopinn, sem þeir fengu sér í lokin, gat ekki bægt honum á braut. Og biskupinn spurði upp úr eins manns ldjóði: Jæja, bræður góðir, haldið þið ])á að við liöfum rambað á rétta veginn? Prestarnir létu því ósvarað,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.