Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 24
| KIRKJURITIÐ
aðeins baráttu fyrir málefni Guðs, sagði við sænska prestinn,
sem söguna segir, þetta: Ég hef aldrei soltið né þurft að liggja
úti. Enda hef ég aldrei iðrast þess aS verða við áskoruninni.
Postulafrímerki.
Mér var það ókunnugt áður en ég las það hér um árið í
grein eftir sænska prestinn Gunnar Norberg, að til eru mörg
frímerki með mvndum postulanna. Ekki á Norðurlöndum og
víst eingöngu kaþólsk. Mörg gefin út í Vatikaninu en önnur
í Suður-Ameríkuríkjum, ýmsum Evrópulöndum og ef lil vill
víðar. Hópmynd af postulunum er m.
a. á ítölsku frímerki frá 1923. Ekki
munu allir postularnir vera myndaðir
einir sér. Lang algengast er það um
þá Pétur og Pál, enda víðfrægastir
og sá fyrrnefndi talinn „fyrsti páf-
inn“ af rómversk-kaþólskum. Jakoh
er hinn mesti dýrðlingur á Spáni og
þar er höfuðkirkja lians, og því ekki
að undra þótt mvnd lians sé þar á
nokkrum merkjum. Til er og Colom-
bíufrímerki, þar sem Andrés styðst
við kross sinn, sem er eins og trana
í laginu, og lýtur vorgyðju landsins, jungfrúnni frá Chiquin-
quira.
Á meðfylgjandi mynd sést Jóhannes standandi ásamt Maríu
undir krossi Krists. (Sbr. Jóh. 19, 26n). Merkið er gefið út í
Belgíu 1949.
Árið 1956 voru gefin hér út Skálholtsfrímerki með myndum
af Þorláki helga, meistara Jóni og dómkirkju Brynjólfs hiskups.
Þau voru með yfirverði, og spillti það sölunni. Hví ekki að
gefa út Hallgrímsfrímerki á réttu verði til styrktar Hallgríms-
kirkju? Jafnvel merki Guðmundar góða í þágu líknarmála?
Margt gæti verið fráleitara, ef ekki væri ofgert í þeim efnum.