Kirkjuritið - 01.04.1962, Qupperneq 41
KIRKJURITIÐ
183
markmið, sem keppt er að. Það þarf að margfalda mannleg
samskipti, moka ofan í skotgrafirnar, brúa bilin.
Þá gerði faðir Pire grein fyrir því, hvers vegna þessar æsku-
lýðsstöðvar befðu verið helgaðar minningu Gandhis.
„Oss er ferskt í minni hversu liann barðist og lét líf sitt að
lokum fyrir sameiningu þjóðar sinnar, sem liann sveið sárt að
skyldi vera svo liörmulega klofin af trúarlegum ágreiningi.
Þess vegna bauð liann, þótt Hindúi væri, bræðrum sínum,
múhameðstrúarmönnum, til sameiginlegra kvöldbæna. Og það
kom á daginn, að það var ekki trúarlegur andstæðingur hans,
heldur hans eiginn trúbróðir, sem myrti hann, vegna þess að
Gandhi dirfðist að rjúfa aðgreiningarmúr trúarbragðanna og
bjóða bræðrunum handan hans til sambæna. Hann hélt því
fram, að það væri syndlaust að ákalla Guð á arabísku.
Vér getum lagt hönd að því að brúa skotgrafirnar, sent
grafnar hafa verið milli svartra og hvítra, Austurs og Vesturs
og liinna velsælu og vanbirgu. Menn, sem hafa hug á að fylla
upp skotgrafirnar og brúa öll bilin, verða að hætta á að leggja
á vaðið. Eða eins og arabískur málsháttur kveður að orði:
Nokkrir heimskingjar hafa vaðið berfættir yfir fljótið, meðan
spekingarnir hikuðu á bakkanum. Ég er einn þessara heimsk-
ingja, sem freistar þess að vaða barfættur yfir ána“.
Þegar faðir Pire veitti friðarverðlaunum Nóbels viðtöku í
Osló haustið 1958, höfðaði hann á líkan hátt til mannlegs
hræðralags. Þá var hann 48 ára og hafði í 12 ár verið forvígis-
maður og brjóstvörn hælislausra og hálfgleymdra flóttamanna
vorra tíma. Einkum bar liann „vafageplana“ fvrir brjóstinu
og leitaðist við að koma þeim á réttan kjöl innan samfélags-
ins. Hin mikla viðurkenning, sem verðlaunaveitingin var lion-
um, jók honum áhuga og ásmegin til að rétta liinum örþrota
nóttamönnum hjálparhönd. Enda kvað hann svo að orði við
Hugues Vehenne, sem færði ævisögu hans í letur: „Ég hef
aldrei átt nokkra friðarstund síðan ég hlaut Nóbelsverðlaunin“.
Hér eru önnur ummæli, sem túlka skýrt lífsskoðun þessa mann-
vinar: „Mennirnir byggja of marga múra en of fáar brýr“.
„Menn hefðu blygðast sín niður í tær við að sjá Krist í þeim
fatadruslum, sem sumir hentu í okkur“. „Það eru miklu strang-
ari útflutningsákvæði varðandi gamalt fólk en sprengjuefni“.