Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 45
Kjartan Sveinsson, shjalavörður:
Prestar þurfa að staðfesta skýrslur
Skýrslur um fermd börn hér á landi eru orðnar hið merk-
asta heimildarrit og ná óslitið frá árinu 1931 til vorra daga.
í*ær hafa verið bundnar inn, hvert ár fyrir sig, af öllu landinu,
og hillurnar, sem þessar skýrslur fylla, eru orðnar 5 inetrar
á lengd.
Sérstaklega koma þessar skýrslur að miklum notum úr þeim
prestaköllum, þar sem prestsþjónustubækur liafa orðið eld-
inum að bráð, og eru þær því einu lieimildarritin, þegar svo
stendur á, fyrir fæðingardögum fjölda manna, bæði lifenda og
látinna.
Fyrir utan hérlenda menn, hafa þúsundir Vestur-lslendinga
leitað hingað til lands fyrir sönnun á aldri sínum, en slík
sönnun er skilyrði fyrir því, að þeir hljóti ellilaun þar í álfu,
því þar, eins og hér, er auðvitað miðað við vissan aldur. í
þessum fyrirgreiðslum fyrir vestur-íslenzkt fólk hafa þessar
fermingarskýrslur oft orðið þrautalendingin.
Á öldinni sem leið voru þessar heimildir nær undantekn-
ingarlaust staðfestar með nafni sóknarprests, en á síðari tím-
'*m hefur orðið á þessu liinn mesti misbrestur og stöðugt farið
vaxandi. Það er ekki nægilegt að prestar sendi hréf með þess-
um skýrslum. Bréfin og skýrslurnar verða viðskila, því ferm-
ingarskýrslurnar einar eru árlega sendar Þjóðskjalasafni frá
skrifstofu biskups.
Þessar skýrslur koma einnig að daglegum notum, þar sem
Hinar yngri prestsþjónustubækur eru úti í hinum dreifðu
sveitum og bæjum, því oft kemur fólk í Þjóðskjalasafnið á
síðustu stundu, fólk sem þarf að ganga undir próf eða ganga
1 hjónaband hinn sama dag, án þess að liafa liaft nauðsyn-
legan fyrirvara um útvegun aldursvottorða.