Kirkjuritið - 01.04.1962, Side 48
190
KIRKJURITIÐ
Síð’astliðið aðfangadagskvöld, en þá var aðalsalurinn fyrst tekinn
til nota, munu um 800 manns hafa lilýtt aftansöng í salarkynnum
byggingarinnar, en vandað hátalarakerfi er um allt húsið.
í byggingunni er ágætt eldhús og rúmgóð snvrtiherbergi, og í
risi yfir anddyri verður fundar- eða vinnusalur fyrir 80—100
manns.
Húsnæði það, sem nú er fengið, hefur kostað um 4 milljónir
króna. Fjár hefur verið aflað með framlögum safnaðarins, happ-
drætti, hlutaveltum og almennum söfnunum. Þá hefur söfnuður-
inn notið góðs framlags úr Kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkur.
Kvenfélag safnaðarins hefur gefið hverja stórgjöfina af annarri
til byggingarinnar. Þá hefur bræðrafélag safnaðarins lagt henni
drjúgan skerf, svo og önnur samtök og fjölmargir einstaklingar.
öllum Jíessum aðilum ber að ]>akka, að nú er góðum áfanga náð.
Nú, Jjegar hluti jiessarar bvggingar liefur verið vígður, verður
aðalsalur hennar tekinn til messulialds og allra helgiathafna. Þar
mun verða fermt 9 sinnum í vor og fyrsta sinni sunnudaginn 1.
apríl.
Þegar er sýnt, að mikil Jiörf er þessarar byggingar. Má heita
að fullskipað hafi verið við flestar messur í safnaðarsalnum frá
J)ví liann var tekinn til nota um síðustu jól. Langlioltsprestakall
er nú orðið eitt fjölmennasta prestakall landsins með um 9500
sóknarbörn. Verður því að halda ótrautt áfram við byggingu
kirkjunnar, sem föng frekast leyfa. Þarf fyrst að ljúka anddyri og
loftsal safnaðarbeimilisins, en síðan reisa sjálft aðalkirkjuskipið
og turn kirkjunnar.
Sóknarprestur er séra Árelíus Níelsson, safnaðarfulltrúi Magnús
Jónsson, bankastjóri, formaður safnaðarnefndar Helgi Þorláks-
son, skólastjóri, en Vilhjálmur Bjarnason, forstjóri,er formaður
hyggingarnefndar. Frú Ólöf Sigurðardóttir er formaður kvenfé-
lags safnaðarins. Sigurgeir Sigurgeirsson, bankafulltrúi, er for-
maður bræðrafélags, en frú Þorbjörg Jensdóttir er formaður
kirkjukórsins. Söngstjóri er Helgi Þorláksson.
Lngholtssöfnuður þakkar öllum einstaklingum, opinberum að-
ilum og félögum, sem lagt hafa fram hug og hönd á 10 árum
þessa safnaðar til að byggja upp safnaðarvitund, safnaðarlíf og
safnaðarkirkju, sem vonandi heldur áfram að vaxa sent flestuni
til gæfu og góðs fordæmis“.