Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 49

Kirkjuritið - 01.04.1962, Page 49
Stringfellow Barr, háskólarektor: Um þekkinguna er erili allra manna aíi þrá þekkingu". — Aristoteles. Þetta var sannmæli, þegar Aristoteles skrifaði þaS á grísk- unni fyrir meir en tvö þúsund árum síðan. Og það er jafnsatt í dag. Það er eðli allra manna, að þrá þekkingu. Aristoteles nefn- ir engar undantekningar, eins og oss mundi hætta til. Hann á hér við alla — menn og konur, rika og fátæka, svarta og hvíta, unga og gamla. Hann rakst að sjálfsögðu á menn, sem ekki virtust kæra sig um neina þekkingu: þeir verða á vegi vor allra. Hann hitti líka fyrir menn, sem virtust ekki kæra sig um neinn mat. En, ef einhver liættir að vilja fá eitthvað í svanginn, þá er eitthvað bogið við hann líkamlega. Og ef ein- hver hirðir ekki lengnr um neins konar lærdóm er eitthvað að honum andlega. Það er honum eðlilegt að verða að eta — og eins að verða að læra. Ef hann hættir að borða, skreppur saman í lionum maginn, hann liorast og verður gugginn í framan. Ef hann liættir að læra, þrengist hugur hans, liugs- anir lians verða veigalitlar, mál hans sviplítið — og leiðinlegt. Ummæli Aristotelesar gætu verið einkunnarorð allra æðri °g læg ri skóla í landinu. Og þau eru erindisbréf hvers kenn- ara. Þau segja oss hvers vegna vér krefjumst allmennrar mennt- unar. Hann orðar þá tilfinningu, sem vér berum allir í brjósti, að fullorðnir þarfnast hennar engu síður en börn og unglingar ■— eða jafnvel enn frekar. Hann minnir oss á það, að fólki er «eðlilegt“ að vilja læra. Og hann veit að fólki er líka eðlilegt að þarfnast þess að vera minnt á þetta. Því að — það er nú einu sinni því verr og miður þannig — að allir menn gleyma því, sem þeir þrá mest.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.