Kirkjuritið - 01.02.1966, Qupperneq 10

Kirkjuritið - 01.02.1966, Qupperneq 10
KIRKJURITIÐ 56 eftir því, að þeir kæmn sínum sjónarmiðum á framfæri. Reglu' bundnir fundir voru haldnir með áheyrnarfulltrúum og stýrði þeim sá ágæti maður, Jóhannes Willebrands, biskup, náinn samstarfsmaður Bea kardínála. Þar voru umræður frjálslegar og óþvingaðar og það er ekkert leyndarmál, að efnismeðferð og orðalag ýmissa álitsgjörða þingsins tók breytingum í með- förum vegna tillits til sjónarmiða, sem fram komu frá áheyrn- arfulltrúum á þessum fundum. VI. Á síðustu setu þingsins voru áheyrnarfulltrúar og gestir um bundrað talsins. En þingfulltrúar voru allir biskupar kaþólskn kirkjunnar og nokkrir fleiri prelátar. Alls voru þeir um 2400. Þingið fór fram í Péturskirkju og var kirkjan sérstaklega búin til þinglialdsins, klædd tjöldum og liækkandi bekkjaröð- um komið fyrir sitt hvoru megin, ásamt borðum. Bekkir og borð voru búin rauðu klæði. Álieyrnarfulltrúar og gestir liöfðn sæti á palli mjög nærri háborði þingforseta og sæti páfa. Höfðu þeir liina ágætustu aðstöðu til að fylgjast með ölln- sem fram fór. Hljómburður var hinn bezti og latínan -— en allar umræður voru á latínu, svo og öll þinggögn — hljómaði fagurlega undir livelfingum bins mikla musteris, einkum 1 mimni hinna snjallmæltu Itala, Frakka og Spánverja. Ég dvaldist aðeins 8 daga í Róm og þinginu var að ljúka. Bein kvnni mín af þingstörfum voru því næsta takmörkuð en þó betri en engin. Ég fékk tækifæri til að sjá og heyra, hvernig þingfundir fóru fram. En ekki var liitt minna virði, að ég náði persónulegum fundi furðu margra á þessum stutta tíma og gat rætt við þá nokkuð. Þar á meðal voru ýmsir áheyrnarfulltrúar, grísk-orþodoxir, anglikanskir, lútherskir o- fl., m. a. ábóti og prior mótmælendaklaustursins í Taizé a Frakklandi, en það er ný og merkileg stofnun, er vekur vax- andi atliygli í allri kristninni. Og ég fékk viðtal við Bea kardínála, Willebrands biskups og Pál páfa. Auk þessa var ég nætursakir í klaustrinu Casamari og skrapp dagstund til Assisi- Um allt þetta naut ég frábærrar fyrirgreiðslu kaþólskra bræðra íslenzkra, Jóliannesar biskups og einkum séra Alfons Mertens, svo og erkibiskups kaþólskra á Norðurlöndum, dr. Bruno B- Heim.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.