Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1970, Page 8

Kirkjuritið - 01.11.1970, Page 8
390 KIRKJURITIÐ sjá einar svalirnar upp af öðrum, þar sem fimmtíu þúsund áliorfendur gátu í einu liorft á ])að, sem fram fór niðri á leik- sviðinu. Við sjáum pallinn, þar sem keisararnir sátu með f)'lgd- arliði sínu, og næstir honum æðstu embættismenn liins verahl- lega og andlega valds. Neðstu svalirnar voru ætlaðar riddurun- um, miðsvalirnar rómverskum horgurum, en hinar efstu almenn- ingi. Efst á brúninni liöfðust þeir við, sem drógu seglin yfir hið þaklausa leikhús, ef sólin brann of lieitt eða regnið vætti klæði manna. Hjer var ekki um að ræða neinar smávegis ráð stafanir, því að ummálið er 527 metrar, og lengdin á einn veg- inn 156 metrar. — Byggingin er sporöskjulöguð. -— Steinsnar frá Colosseum var annað leikhús, sem tók helmingi fleiri áhorfendur, Circus Maximus. Af sjálfu leiksviði Colosseum er nú ekkert eftir, enda mun það liafa verið úr timbri. En greini- lega sjezl ofan í bin mörgu kjallaragöng. Þar voru vistarveriir þeirra, sem tóku þátt í leikjum þeim, sem áttu að skemnita hinum fornu Rómverjum, lágum sem liáum. — Þar voru her- hergi skilmingamannanna, eins konar íþróttakappa, sem börð- ust upp á líf og dauða, ýmist innbyrðis eða við alls konar villidýr, sem sótt voru langar leiðir að. Á leiksviðinu liöfðu stundum verið bvggð smáfjöll og liólar, og fyrir kom, að ]>ar var myndað allstórt vatn, ef leika skyldi sjóorustu. Ekki voru mannslífin mikils metin á þessum leiksýninguin, og oss verður hugsað til þeirra, sem þar gegndu sínum lihit- verkum. Sumir Iiöfðu valið sjer þau að atvinnu, eins og nauta- banar og linefaleikamenn gera á vorum dögum. En aðrir voru settir þar til dráps. -— Jeg hefi einhversstaðar lesið, að það hafi fremur verið í Circus Maximus, lieldur en Colosseum, að píslarvottar kristninnar mættu dauðanum í baráttu við vilh- dýr, voru krossfestir eða af lífi teknir á annan hátt. En livað sem um það er að segja, liafa þeir vafalaust verið margir, sein sungu sinn dánarsálm þarna niðri á sviðinu í Colosseum. Og deyjandi veittist þeim lilutdeild í sigrinum, sem Drottiu11 vann. Það er gjörsamlega ómögulegt að skoða Rómaborg, án þ<?sS að fá skýrar sannánir fyrir því, að fornkirkjan var píslarvættis- kirkja. Við förum ofan í Katakomburnar undir St. Clemensar- kirkjunni og Callixtusar-Katakomburnar út með Appiaveg111' um, sem var liinn forni þjóðvegur inn í Róm. Eftir þeim veg1

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.