Kirkjuritið - 01.11.1970, Blaðsíða 39
KIRKJURITIÐ
421
fram og „gamla konan“ eða gyðjan gefur þeim nöfn. Það
vissi spekingurinn forni, sem sagði: Kenn þeim unga þann
veg, sem hann á að ganga, og þegar liann eldist mun hann
ekki af honum beygja.“
Þessi orð hefur kristileg kirkja alltaf liaft í lieiðri og má
að vissu leyti telja, að afskipti hennar og hennar þjóna af
æskulýðnum, sé frumþáttur fræðslu og skólalialds hjá öllum
hinum svonefndu kristnu þjóðum.
Alls staðar sem kristni var boðuð hefur skólamenntun og
fræðsla fylgt í kjölfar liennar og réttur barna til manpsæm-
andi uppeldis og þekkingar talinn sjálfsögð réttindi og mikils-
verð til að lifa sem kristinn maður.
Er þar kunnast og frægast fordæmi Ansgars „postula Norð-
urlanda“, hann tók til sín unga sveina, fræddi þá og sendi
þá síðan til lieimila sinna og heimkynna til að boða kristna
trú. Voru sumir þessara drengja fæddir í ánauð, en liann
keypti þeim frelsi og gerði þá að þjónuin hinnar ungu kristni.
Þannig tókst þessu stórmenni andans að tendra anda kristins
dóms í vitund liinna heiðnu víkinga, svo að nú eru niðjar
þeirra taldir bezt kristnir allra þjóða og sagt um þá, að þeir
liafi náð því stigi kristins dóms, sem engin styrjöld fylgir.
Hvort sem rekja mætti þann árangur til aðferðar og anda
Ansgars eða ekki, má áreiðanlega fullyrða, að fátt er áhrifa-
nieira á þroskaferli barns en femiingarundirbúningur, sé þar
unnið að með alúð og áhuga.
En livar sem allri skólafræðslu er nú komið, ætti það lield-
ur ekki að gleymast, að hér á Islandi hefur kirkjan verið og
Var miðstöð allra mennta og átti frumkvæði að öllu skólahaldi
°g handritaskrifum og þeim fræðiiðkunum, sem lögðu grunn-
inn að gjörvallri sögu og menningu Norðurlanda á síðari öld-
um. Hún bjargaði jafnvel liinni lieiðnu erfð og mennt frá
glötun, með sagnaritun og ljóða.
Fáir munu þeir prestar, sem gleyma fyrstu fermingarböm-
um sínum.
Og eitt af því sem vekur stöðugt nýja eftirvæntingu og
fögnuð, en um leið ábyrgð og dálítinn kvíða í hug og hjarta
Prestsins, er einmitt þegar hann tekur á móti nýjum liópi
barna til undirbúnings hverju sinni.
Engin tvö andlit í öllum stóra hópnum eru eins. En það