Kirkjuritið - 01.11.1970, Side 43
KIRKJURITIÐ
425
Allt yerður að vera liátíðlegt og aðlaðandi í senn, liæft til
að skapa virðingu og aðdáun, lielzt ómeðvitaða hrifningu.
Gott er að hafa ákveðin form til að vinna eftir og taka fyrir
aðalatriði í trúarkenningum og siðgæði, en ekki nema aðal-
atriði, annars getur allt orðið ofraun og óskiljanlegt.
Þess vegna er sjálfsagt að liafa stutta hók um þessi efni, hið
svoncfnda kver, en þau eru mörg til og misjöfn að gæðum.
Sjálfsagt er að velja um efni þeirra eftir atvikum, en byrja
ekki endilega á upphafinu og enda á síðustu lilaðsíðu. Eins
eru heimsóknir í kirkjur og listasöfn mikils virði, ef við verð-
Ur komið.
Stutt bænarstund, söngur og ldjóðfæraleikur er nauðsynlegt
í öllum samverustundum. En vandlega þarf að athuga, að
engum sé ofþjakað. Betra er eitt vers vandlega lært og lesið
en lieill sálmur lélega lærður.
Lögin við sálmana þarf að endurtaka aftur og aftur, þangað
til þau hljóma á innstu lijartastrengjum og fylgja svo harainu
uivilangt, vekjandi minningar og vonir.
Hefja skal hverja samverustund með söng og t. d. Trúar-
játningu, Sæluboðunum, Kærleiksóði Páls postula eða öðrum
slíkum kafla og ljúka á svipaðan hátt með söng og hæn t. d.
Faðir vor.
Einnig er ágætt, að bömin geri vinnubækur, svonefndar
fermingarbækur. Skrifi þar úrval og minnisatriði, myndskreyti
síðan eftir föngum með eigin teikningum eða lielgimyndum.
Þau geta unnið slíka bók heima á sem allra persónulegastan
liátt, en efni og aðferð sé vandlega undirbúið af prestinum í
saniverustundunum.
Þótt allur blær á undirbúningstímanum sé liátíðlegur þá
J»á þar aldrei ríkja þreyta og leiðindi. Umræðuefnið þarf að
Vera þannig valið, að það sé sem allra fjölbreyttast og snerti
ðhugamál og andlegt líf barnanna sjálfra. T. d. Hvers vegna
sækir þú kirkju? Gæti líka verið, livers vegna sækir þú ekki
Lirkju?
Hvaða listaverkum eruð þið hrifnust af? Hvaða hugmyndir
Fafið þið um Guð? Hvað er dagleg umgengni? Hvað er liátt-
vísi? Hvernig er fetað í fótspor Krists?
Hvers vegna er hættulegt að neyta áfengis og tóbaks? Hvað