Kirkjuritið - 01.11.1970, Page 49
KIRKJURITIÐ
431
til að finna þakklæti sitt yfir gjöf lífsins, en stundum er mað-
Urinn jafnvel svo blindur (á þakklætiskenndina) að það getur
ekki. lirært strenginn í brjósti lians, þótt liann hljóti lækningu.
Þannig voru þeir 9.
Hvort fyllum við flokk hinna níu, eða hins eina? Gefum
okkur tækifæri til að íliuga það.
Frá morgni til kvölds erum við að njóta einhvers sem aðrir
hafa erfiðað, lagt sál sína í, og þrá það að gera okkur til geðs.
Höfum við liugleitt, hvað þakklátsemin hefur þar að segja?
Kannski fór stundum eitt eða annað úr skorðum, og erfiðlega
gekk að láta daginn líða í samlyndi, í tillitssemi.
Hvað vantar þá? Að við séum þakklát. Það sýnist vera lítil-
fjörlegt atriði, en er þó óumræðilega stórt. Sál liússins, heim-
disbragurinn nærist á þessu orði, en tærist ef það vantar.
Frá því að klukkan vekur að morgni og þar til værðin
kemur að kvöldi með faðm næturinnar og svefnsins ró, er
l'ví margt að þakka. Látum það livetja okkur til að líkjast
hinum eina sem skaraði fram úr í þakklátsemi. Guði séu
bakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottinn vorn J esúm Krist.
knbaittispróf í guSfrœ&i tóku þrír á þessu hausti: Gunnar Kristjánsson,
Olafur Oddur Jónsson og Sigurður Helgi Guðmundsson, sem var vígður til
heykhólaprestakalls, 11. þ. m.
Séra Þórarinn Þór, prófastur var kosinn lögmætri kosningu i Patreks-
fjarðarprestakalli.
GuSjón GuSjónsson kand.theol. var kosinn lögmætri kosningu í Slóra-Núps-
Prestakalli. Vígður í Skálholti 25. október.
^éra Jónas Gíslason liefur verið skipaður preslur í Grensásprestakalli.
Séra Tómas GuSmundsson liefur verið skipaður prcstur í Hveragerði.
Séra Agúst SigurSsson hefur verið skipaður prestur í Ólafsvík.