Kirkjuritið - 01.12.1970, Page 11

Kirkjuritið - 01.12.1970, Page 11
Frá Leningrad Kirkjuritinu er kunnugt um, að Jón Auðuns dómprófastur var í sumarleyfi í Leningrad á liðnu sumri og lagði ritstjórinn fyrir liann nokkrar spumingar, einkum um kirkjur og kirkju- líf þar eystra. Hverjar minningar átt þú frá Leningrad á luSnu sumri? Ég veit minnst um þá miklu borg eftir vikudvöl, en fullyrði að hún er ein allra fegursta borg Evrópu, enda liöfuðborg Rússlands allar götur frá Pétri mikla og fram til 1918. Geysi- fagrar liallir, dýrðleg listasöfn og leikliús og nálega óviðjafnan- legt skipulag borgarinnar, sem byggð er á u. þ. b. 100 smá- eyjum og hólmum í Nevafljóti, gera borgina ákaflega eftir- sóknarverða ferðamönnum. En svo var önnur blið á jtessari fögru borg dapurlegri, en það var, að sjá binar stórveglegu kirkjur ýmist notaðar sem söfn aðeins og lokaðar guðsþjónustulialdi, eða látnar lirörna sem geymslubús og vöruskemmur. Mér var ógeðfellt að sjá bina gömlu og veglegu lúthersku kirkju við Nevskystræti rúna ulluni belgum dómum og notaða sem sýningarbús vegna aldar- ufmælis Lenins. Eru ekki margar kirkjur notaSar til helgihalds? Leningrad er skipt í 19 borgarliverfi og í liverju Jjeirra er leyfð ein kirkja til helgilialds. Þannig eru aðeins leyfðar 19 Lirkjur til guðsþjónustulialds fyrir 4 milljónir manna. Hvað sýndist þér um kirkjusókn? Lm liana get ég ekki dæml af eigin raun, {jví að skipið, sem eg ferðaðist með, fór frá Leningrad á bádegi þess sunnudags, sem ég ætlaði að nota til að sækja guðsþjónustu. En liitt er 'íst, að trúarlíf í Rússlandi er miklu meira en áróðursmenn fyrir guðleysi vilja játa. En Jieir liafa meginstöðvar sínar í einum allra veglegasta lielgidómi borgarinnar, sem áður var. Lar fá menn fræðslu um „trúarbragðasögu“ og guðleysi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.