Kirkjuritið - 01.12.1970, Qupperneq 40
470 KIRKJURITIÐ
mætti verð'a verðugur arftaki hinna merku menningarstöðva
um Húnaþing, þar sem guðrækni og þjóðrækni, þessir liöfuð-
þættir íslenzkrar þjóðarsálar mættu um ókomna tíma lialdast
í lrendur.
Ég bið þessari skólastofnun, skólastjóra, kennurum, neni-
endum og öðru starfsfólki, blessunar Guðs um alla framtíð.
Heill og liamingja fylgi störfum skólans til blessunar landi
og þjóð.
Hátíðarmessa í Holti,
Kirkjan gamla, kirkjan mín,
kem ég enn að vilja jnn,
til að öðlast traust og fró
trúarstyrk og salarró,
sjá og vita Itimins hlið
huga mínum blasa við.
Tak jni cnn á móli mér.
Mér finnst gott að vera hér,
rncðan lítillœti þitt
lykur sig um hjarta mitt.
Sé mín auðmýkt eins og Jni
yfir minni veiku trú.
Gamla kirkja gefðu mér
Guði vígða stund með þér.
Vertu, bljúg og veggjalá,
vörður minni himinþrá.
Kirkjan litla, kirkjan mín,
kenndu mér að njóta þín.
2. ágúst 1970. (Slólvers)
Guðmundur Ingi Iíristjánsson.