Kirkjuritið - 01.04.1978, Qupperneq 8
Með nokkrum haetti mætti segja,
að Gyðingar hefðu hafnað fagnaðar-
erindinu sem þjóð og forréttindi þeirra
til að heyra það hefðu gengið til
hinna, sem upphaflega voru í „öðru
sæti“: heiðingjanna. Og þó stendur
frumréttur Gyðinganna með nokkrum
hætti í gildi. Þeir eru og verða útvalin
þjóð Guðs, sem hann hefur á engan
hátt hafnað. ,,Leifar“, sem [ hans aug-
um eru hinn sanni ísrael, hafa ætíð
verið við lýði og munu ætíð verða. Og
kynslóðir Gyðinga, sem ekki hafa átt
þess kost að taka afstöðu til Jesú
Krists, og verða þess vegna að fá að
heyra boðskapinn um hann, spretta
upp æ á ný.
í rauninn hættir kristniboðið meðal
Gyðinga aldrei að hafa forgang. Það
hlýtur og verður í vissum skilningi
stöðugt að vera fylkingarbrjóst kristni-
boðsins. Það skiptir meira máli, að sá
fremsti fylkingarbroddur sé bitur og
hvass heldur en hann sé breiður og
fjölmennur. En eitthvað skortir sár-
lega í þá kirkju, sem ekki sér til þess,
að þetta fylkingarbrjóst sé á sínum
stað og vel vopnum búið til að standa
í hörðustu hríðinni .
En ríki Guðs er ekki ætlað neinni
einni þjóð einungis, ekki einu sinni
þjóð ísraels. Og því sveigir her kirkj-
unnar skjótt móti hinum heiðnu fram-
sveitum. Og þangað beinist afl hans
af þunga og í baráttu til sigurs. „Heið-
ingjarnir með tölu og leifar ísraels."
Þau orð verða æ sannari. í síðasta
stríði er enn frekar og í bókstaflegri
merkingu gengið á „leifarnar". Næst-
um þriðjungi kynþáttarins er útrýmt.
„Tala heiðingjanna“ verður stærri og
stærri með hverjum degi, sem líður.
Kristniboðið er þess ekki umkomið að
hafa við hinni gífurlegu fólksfjölgun
í öllum heiðnum löndum. Þar verður
fylkingarbrjóstið aldrei nógu breitt ne
vel mannað.
En um síðir, segir Guð orð, mun
ísrael einnig koma með tölu. Inn'
ganga heiðingjanna í ríki Guðs ska1
tendra hugi Gyðinganna, og hinn
sanni ísrael mun allur frelsast. Og Þa
verður öllu kristniboði lokið, aðeins
einn sigrandi söfnuður í heimi.
En hvert verður þá í stuttu máli gi^1
kristniboðsins meðal Gyðinga fyr,r
heiðingjakristniboðið og hið gagn'
stæða, á meðan enn er barizt á tvenn-
um vigstöðvum?
Gyðingakristniboðið er fyrsta kær'
leiksskylda kristins safnaðar, hl
fyrsta endurgjald kærleikans til hans^
sem fæddist barn meðal ísraels
unni þjóð sinni allt að tárum og bléð1-
Sá er snertir ísrael, snertir augaste'n
Guðs. Sá, er ber hjálpræði ísrae|s
fyrir brjósti, gleður hjarta Guðs.
Þess vegna verður kristniboð1
meðal Gyðinga prófsteinn á heilin 1
og hita kristniboðshugans. Kristnibo
ið veldur sífelldu hneyksli, einku^
gyðingakristniboðið. En einmitt ÞeS.s
vegna er það lagt svo á hjarta hved
um sönnum kristniboðsvini, að hanf1
gleymir því aldrei. Og því er næs,a
vel við hæfi á ofsóknartímum, Þe9
gyðingakristniboðið verður fyrst fYr'
árásum og má alls ekki heyrast nefn ■
að þvi sé einfaldlega gefið he'
„kristniboðið." j
Gyðingakristniboðið verður einnið
raun einkenni hins sanna kristnibo
vilja á þann hátt, að það er a^(6
borið uppi af stórfelldum árangti 0