Kirkjuritið - 01.04.1978, Qupperneq 36
sunnudags hjá Matteusi 21:5: „Sjá,
konungur þinn kemurtil þín.“ Konung-
ur himnanna var kominn til þess að
flytja hana heim til hins fagra lands
lifenda. Jarðarförin fór fram á laugar-
daginn fyrir páska, sama daginn og
Jesús steig niður til heljar með Ijós
fagnaðarerindisins ,,og predikaði fyr-
ir öndunum í varðhaldi," (I. Pét. 3:19).
Heima á íslandi syngjum við sálm
Hallgríms, „Allt eins og blómstrið
eina.“ í Danmörku syngjum við sálma
eftir Brorson, skáld jólanna, Kingo,
skáld páskanna, eða Grundtvig, skáld
hvítasunnunnar. Og á þessum degi var
talað um Jesúm Krist, sem stóð á
páskamorgni, ungur, sterkur og hug-
rakkur, framan við opna gröfina, enn
með blóðug sár þjáningarinnar, en
hafði nú slíðrað sverð sitt, eftir að
hafa sigrað óvinina, synd og dauða,
og breiddi út faðminn til þess að
bjóða gjörvöllum heimi til fagnaðar
í konungsríki sínu. „Sjá konungur
þinn kemur til þín.“
Við jarðarförina var mikið af blóm-
um, kertaljós, yndisleg orgeltónlist og
sálmasöngur. Eitt af barnabörnum
okkar, Lisbeth, næstum 10 ára, sagði
við mig: „Afi, ég er með nokkrar krón-
ur í vasanum, sem ég á sjálf. Ég setla
að kaupa blómvönd til þess að leggi3
á kistuna." Og hún keypti Ijósrauða
túlípana .Eftir athöfnina sagði hún við
mig: „Afi .rneðan þú varst að tala, sa
ég blómin mín opnast." Þess vegna
hef ég nefnt þessa grein: „Og blómin
sprungu út.“
Um seinustu jól sendi ég 96 jóla*
kveðjur til vina um allan heim, flestar
til íslands ,sem ég kalla land fjðl'
skyldunnar, ættarinnar og hinnaf
tryggu vináttu. Ég endurtek hana til
íslenzkra starfsbræðra minna, prest-
anna: Vér tendrum aðventuljósin. I
myrkri heimsins skín Ijósið frá fjár'
húsinu í Betlehem, svo að vér getum
ratað heim — til hins fagra lands lif'
enda.
Þökk fyrir andlitin, sem við sáum,
raddirnar, sem við heyrðum og
vináttuna, sem við urðum aðnjótandi-
Blessunarkveðjur ár 1978
post Christum natum.
Finn Tulinius.
34