Kirkjuritið - 01.04.1978, Side 74

Kirkjuritið - 01.04.1978, Side 74
fólki í aðsteðjandi og yfirstandandi vandamálum þess. Vestan hafs hafa prestaskólarnir á námskrá sérstök námskeið í sálfræði og öðrum hlið- stæðum greinum og er ætlast til, að allir starf^ndi lútherskir prestar sæki að mlnnsta kosti tveggja vikna námskeið á hverju sumri. Hér er um einskonar framhaldsnám að ræða. Margir prestanna, sem eru miðaldra eða eldri, eins og ég, sækja einkum námskeið í sálfræði og sálgæzlu, því á námstíma okkar var ekki lögð jafn- mikil áherzla á þessar greinar og nú er gert. En hvað er þá sálgæzla ? Sálgæzla er persónulegt hirðisstarf prestsins, umhyggja hans fyrir ein- staklingnum og viðleitni hans til að greiða úr margvíslegum flækjum og vandamálum mannlegs lífs, koma til móts við þá, sem siglt hafa lífs- fleyi sínu í strand, eða eru fastir á skerjum í ölduróti tilfinningalífsins. Þeir koma til prestsins ef hann er vin- gjarnlegur og hjartahlýr og hefur á- unnið sér traust þeirra. Þeir koma, hvað sem líður stétt eða stöðu, verkamaðurinn og verkfræðingurinn, öreiginn og auðmaðurinn, íþrótta- maðurinn og sá flogaveiki, gáfumað- urinn og hinn vangefni. Allsstaðar er þörf á kristilegri sálgæzlu, bróður- legum skilningi og umhyggju. Þörfin segir til sín, þegar harðir hnútar taka að særa líkama og sál. Sálgæzla er því öðru fremur persónuleg hluttekn- ing í kjörum fólks, kærleiksrík við- leitni til leiðbeiningar og uppörvunar. Dr. Russel Dicks, formaður sál- gæzlufélags presta í Florida, segir: „Það er ekki hægt að skilja kristna sálgæzlu með því einu að skoða að- ferðir hennar. Menn verða að kynn- ast fólkinu sjálfu og sambúð þess.“ Það segir sig einnig sjálft, að nauð- synlegt er að þekkja vel trúarbrögð- in ,einkum kristna trú eins og hún birtist í samfélagi manna. Sálfræðin leggur stund á að kynna sér lifnaðar- háttu fólks, en kristindómurinn gefur fólki vonarljós, hvað sem lifnaðar- háttum þess líður. Sálfræðin beinir athugun sinni fyrst og fremst að samskiptum manna á hverjum stað og tíma, en kristindómurinn leggui" hins vegar áherzlu á að breyta og umbæta slík samskipti, þar sem þess er þörf. Presturinn setur sig inn a svið mannlegra samskipta og verður þar virkur þátttakandi og leiðbein- andi með fulltingi sálfræði og kristin- dóms. Sálgæzla er þannig áhrif og leiðbeining, sem kemur að utan, leit' ast við að móta hugarfar, bæta sam- búð og veita fólki hugarró. Þess vegna krefst sálgæzla undirbúnings og umhugsunar, bæði þess, sem leif' ast við að hjálpa og hins, sem leitar eftir hjálp, til að árangur náist og markvisst verði unnið. Nú er einhver í vanda staddur. Hann leitar aðstoð- ar, ráða hjá vini, sem hann þekkir. oft er það einmitt presturinn, sem hann leitar til. Eða vinur býður frarTI aðstoð sína og hjálp, þeim, sem hann leitar til. Eða vinur býður fram a® stoð sína og hjálp, þeim, sem hann veit að á í erfiðleikum. Það gi^'f einu hver frumkvæðið hefur. En pu bætist eitthvað nýtt við. Það er sam spil þessara tveggja, bæði á sviði 1 finningalífsins og skynseminnan Styrkur þessa samspils, árang 72

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.