Kirkjuritið - 01.04.1978, Síða 76

Kirkjuritið - 01.04.1978, Síða 76
dyra og leita útgöngu. Einn tónlistar- mannanna áttar sig á því, að hér kunni fólk að troðast undir í múgæsingunni, hann gengur að píanóinu og byrjar að leika eins og engin hætta sé á ferð- um. Leikur hans er hrífindi, gestirnir snúa aftur til sæta sinna og hlusta á hann hugfangnir — og brenna allir inni. — Píanóleikarinn í dæmisögunni er persónugervingur tækni og vísinda nútímans, segir dr. Bustad. Með öðr- um orðum, vísindin og tæknin og efn- ishyggjan, skilgetið afkvæmi þeirra, hefur gripið hugi manna svo föstum tökum, að þeir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Efnishyggjan gefur engin svör við mikilvægustu spurningum mannlegs lífs, og afleiðingin verður sú, að til- finningalega og andlega brennum við til ólífis. Þeir eru vissulega margir á okkar dögum, sem eru sannfærðir um, að við þurfum miklu gleggri svör en vísindin og tækniþróunin hafa veitt að undanförnu. Nýlega var gerð skoðanakönnun í Bandaríkjunum, sem leiddi það í Ijós, að 76 af hundraði þeirra, sem svöruðu töldu að of mikil áherzla væri lögð á tæknilega þekkingu, en ekki nóg á mannúðleg vísindi. Menn héldu því fram, að tæknivísindin hefðu gert þá svo háða vélum og tækjum, að þeir þekktu ekki lengur náttúruna. Þeir, sem svöruðu álitu einnig, að of mikil á- herzla væri lögð á tæknina sjálfa, en ekki nóg á áhrif hennar á líf mann- anna. Dr. Bustad, vísindamaðurinn, sem ég minntist á, segir í ræðu, er hann flutti á þingi vísindamanna: „Vísindi og tækniþróun eru borin þungum sökum á vorum tímum. í 74 stuttu máli er vandinn sá, að vér höf- um að vissu marki náð tökum á jarð- kringlunni sjálfri og skapað hér tíma- bundið mannfélag, sem er undir oki grófrar efnishyggju og horfir til fram- tíðarinnar með kaldri heimshyggju, en jafnframt erum vér slitnir úr tengslum við hið eðlilega og náttúrulega í þeim raunheimi, sem vér lifum og hrærumst í. Hér er breytingin talin sama og fram- för. Að vísu er lífið að mörgu leyfi auðveldara og þægilegra en það var, en það verður sífellt háðara tækniþré- uninni. Vér ættum að nema staðar um stund og endurmeta áhrif tækninnar a hið mannlega og mannfélagslega. É9 álít að endurmat vísindalegrar þróun- ar mundi leiða til nýs skilnings °9 skipa sannleikanum og samúðinni 1 æðra sæti en nú er gert.“ Þannig mælir þá, kæru vinir, viður- kenndur vísindamaður, sem jafnframt er áhugamaður og einlægur starfS' maður í kirkju sinni. Orð hans hjálpa okkur til að skilja betur eina aðal' ástæðuna fyrir því losi og þeirri upP lausn, sem við þekkjum svo vel, Þ- e\' hina grófu efnishyggju, sem einkenn|r tækni- og vísindaþróun nútímans °9 leitt hefur af sér uppreisnarhug, kvfð®’ óróa og spennu, siðferðishrun og 910 un mannlegra verðmæta. Mannl®9 samfélag hefur tekið algerum stakka skiptum, menn standa andsp®nlS fleiri vandamálum en áður, nýj ^ þörfum og kröfum, sem verður svara. Af þessu leiðir ,að fólk he u nnkkru meiri þörf fyrir sálgæzlu en rw' sinni fyrr í sögunni. ( Henri Nouwen, kunnur hollens ^ guðfræðingur og rithöfundur, nú keh^ ari í kennimannlegri guðfræði við J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.