Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 5

Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 5
Ávarp Hafðu Guð fyrir augum Kristni þjóðarí Norðurlandi á Friðbirni Stefánssyni bóksalaog menningarfröm- uði að þakka útkomu Tíðinda um síðustu aldamót. Hann var útgefandi að fyrsta hefti Tíðinda, sem er rit Prestafélags hins forna Hólastiftis. Það kom út á Akureyri 1899, og eru heftin nú orðin fjögur. Þau flytja ýmsan fróðleik, fréttir og hvatningu um kristnihald í Norðlendingafjórðungi. Friðbjörn Stefánsson birtir í fyrstu Tíðindum fundargerð Akureyrarfundar prestafélagsins um mitt sumar 1899, sem var annar fundur félagsins. Sóknarprestur á Akureyri var þá séra Matthías Jochumsson, er lauk prestsþjónustu sinni hálfu ári síðar, um aldamót- 'h 1900. Séra Matthías bauð fundarmenn, 22 presta og prófasta, velkomna með svofelldum orðum, eins og þau eru tilfærð í fundargerð: 1 ■ I nafni og umboði þess guðlega, sem ekki er dautt og með lögum fellt í hinu forna Hólaumdæmi (þ. e. kristilegur andi og manndómur og frelsi í oss, eða guðsríkisneistinn). 2. I nafni og umboði tímans. Stefnurnar tvær, íhalds- og framsóknarstefna, báðar ágætar, en öfgar liggja nærri. Prestarnir eiga að sameina báðar, eftir anda Krists. 3- í nafni siðbótar í voru landi. Allt er mjög á reiki, einkum í breytni þjóðarinnar. Ræðumaður heimtaði predikun í nýrri lífsbreytni, og setti sem hinn fremsta sáluhjálparlærdóm orðin: Hafðu guð fyrir augum og stundaðu kristilega breytni. ^elkomandaorð Matthíasar vil ég gera að ávarpsorðum mínum í Kirkjuritinu, sem fjallar að nokkru um kristni og kirkju þessafjórðungs. í 80 ár hafa prestará Norðurlandi bundizt samtökum í Prestafélagi Hólastiftis að vinna ,,með anda °9 hönd“ að framgangi kristindóms. Félagið hefur haft mönnum á að skipa, sem með leiftrandi andagift og guðmóði hafa látið Ijós Guðs skína. Ber þar hæzt trúarskáldið Matthías Jochumsson, ,,sem frægði mest vora öld“ með sálmum sínum og þjóðsöng. Rundir prestafélagsins hafa stutt mjög einingu og samstarf prestanna og haldið vörð um hinn forna arf. Endurreisn Hólabiskupsdæmis er á stefnuskrá fálagsins, og er um það einhugur, þó að skoðanir skiptist um, hvort biskupsstóllinn eigi að vera á Hólum eða Akureyri, og ennfremur hvort Hóla- 163

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.