Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 32
litlar. Ég var búinn að vera tíu ár fyrir
norðan, þegar ég kom í Steinnes, og
tólf ár, þegar ég kom fram í Svartár-
dal. Hver bjó fyrir sig. En þetta hefur
breytzt mikið á seinni árum. En þarna
voru merkir og ágætir menn, eins og
síra Þorsteinn, síra Stanley Melax, að
ógleymdum síra Sigurði í Hindisvík,
sem ég sagði um, að ætti mest af
himneskum og jarðneskum auði af
okkur prestunum í Húnaþingi. Sig-
urður var hámenntaður gáfumaður,
þótt hann væri einangraður. Hann var
mjög mikill vinur vina sinna, síra Sig-
urður í Hindisvík. - Hann undi sér
hvergi nema vestur á Vatnsnesi.
Hann var mikill raddmaður og söng-
maður.
— En predikari?
- Ég hugsa, að hann hafi verið á-
gætur predikari. Ég hlustaði á hann
einu sinni eða tvisvar. En hann átti til
að fá munnherkju. Hann var feiminn.
Nú, Björn á Auðkúlu tók mér ákaf-
legavel. Hann bauð mérfram að Auð-
kúlu. Þetta var öðlingsmaður og vel
gefinn. Það var aðeins galli á ræðu-
flutningi hans, að framburðurinn var
svo seinn, að mál hans tapaði sér við
það, þegar hlustað var á hann. Hann
var hægur, gamli maðurinn, en ágæt-
urmaður.
Hins vegar var það helzt, að prestar
komu saman á Hólum. Á Hóladegi
komu prestar saman á prestafund
Hólastiftis. Þar var aðal leiðtoginn
síra Friðrik Rafnar, hinn glæsilegi
kirkjuhöfðingi.
Kynslóðir fara — kynslóðir koma
- Hugur minn stóð nú ekki beint til
þess að lesa guðfræði, segir síra Pét'
ur loks og byrjar nú hálfgerða úttekt a
sjálfum sér. - Mig langaði mesttil að
lesa fornfræði eða sögu, og ég var að
hugsa um að fara í Norrænudeildina,
en þá þurfti ég að læra miðaldalatínu,
og ég er nú enginn málamaður. E9
gat ekki hugsað til þess. Það var eng*
in latína kennd í stærðfræðideild þá-
En svo þegar ég kom í guðfræðina,
þá laukst upp fyrir mér, að ég þurítj
að læra grisku. Ég kunni þó svo vel
við mig, að ég ákvað að halda áfram
námi þar. Og ég sé ekki eftir því- Pvl
lengur sem ég er prestur, hef
kunnað beturvið starfiðog þeim mun
vænna hefur mér þótt um það, he
orðið því samgrónari. Ég er orðinn
samgróinn fólkinu. Það er sagt, a
enginn sé orðinn prestur, fyr en
hann er búinn að ferma það, sem han
hefur skírt, gifta það, sem hann hefur
fermt o. s. frv. Það var sagt, að sira
Bjarni hefði ekki farið að draga á sira
Jóhann, fyrr en hann var búinn a
vera þetta lengi.
Það varð mikil breyting á högurTJ
mínum og starfi, þegar ég kvaentis
fyrir tuttugu og tveimur árum. Kona
mín hefur verið mér samhent, far
með mér á kirkjurnar, haft sunn
dagaskóla, tekið þátt í sóknarnefn ^
arstörfum og kvenfélagsmálum-
hefurverið unnið gottstarf í kórunu
hjá okkur. Skemmtiferðir hafa ven
farnar og kvöldvökur haldnar.
margt hefur þetta verið með mes^
ágætum. Ég á margar ógleymanleg
stundir. Og ég finn það bezt nu <
þegar ég fer að eldast, að þegar
190