Kirkjuritið - 01.09.1978, Qupperneq 34
þannig átti þetta að vera.
Einu sinni var hempan annars stað-
ar, og ég hafði húskveðju úti á túni.
Þá kom hann þar og sat öðrum megin
við kistuna, en ég stóð hinum megin
og talaði.
Mér þótti nú sjálfum hálf hjákát-
legt, þegar Kiljan var að láta Bjart í
Sumarhúsum tala mikið við tíkina og
kveða fyrir hana Pontusrímur, en ég
reyndi það svo sjálfur, þegar ég var
einn á mínum ferðalögum á hesti, að
ég hafði afar gaman af að tala við
hundinn minn á leiðinni. Og hann tók
vel undir það, kættist allur. Mér þótti
ómetanlegt, að eiga þennan ratvísa
hest og þennan góða hund.
- Ferðaðist þú þá mest einhesta?
- Já, og var alltaf einn á ferð,
aldrei með fylgdarmann.
- Var sá siður þá niður lagður, að
presti væri fylgt?
- Já, það var víst engin venja á
Ströndinni. Sumir eldri prestar höfðu
þó fylgdarmenn. Ég gisti náttúrlega
oft á þessum ferðalögum.
Síra Pétur segist hafa lagt niður
húsvitjanir, þegar prestar þurftu ekki
lengur að taka manntal.
- Það er eiginlega ómögulegt að
húsvitja á bíl, ef farið er að þiggja
góðgerðir. Það drepur hvern mann.
- Það sköpuðust náttúrlega miklu
nánari tengsl með þessu móti, segir
viðstaddur.
- Já, já, það var svo, anzar síra
Pétur. En tengslin eru orðin sterk,
vegna þess hve ég hef verið þarna
lengi. Þó er alltaf að koma nýtt fólk
inn í kallið. Ég eralltaf að spyrja ungu
konurnar, sem eru aðkomnar:
„Hverjum ertu gift?“ Ég þekki þær
192
ekki nógu vel. Ég er orðinn þetta
gamall, að ég vex dálítið frá yngri
kynslóðinni, sem ekki er alin upp '
kallinu hjá mér.
Ungir prestar og prestarespektin
- Núerusumirafeldriprestumað
tala um, að þeim lítist ekkert á ungu
prestana.
- Ég vil segja það um ungu prest-
ana, að ég álít, að þeir séu betur und-
irbúnir heldur en við. Við fluttum bara
ræður þarna í Dómkirkjunni, og eng-
inn hlustaði á nema kannski hinir i
deildinni, ekki mjög andaktugir, 09
svo prófessor Sívertsen niðri á gólf'-
kallandi upp í stólinn til að gagnrýna
nemandann. Ég tekeftirþví.að þessir
ungu prestar bera.miklu betur fram
heldur en við. Þeir eru áreiðanle9e
þjálfaðir í því. Og þeir eru þjálfaðir i
sálusorgun á sjúkrahúsum eða ann-
ars staðar. Um ræðugerð þeirra er
það að segja, að ræður þeirra eru
öðruvísi en okkar gömlu prestanna j
margan máta, en ég erekki að áfellas
það, ef þær eru vel samdar og trúar-
leg æð í þeim, þótt umbúnaðurinn s
með öðru móti. Umbúnaðurinn
breytist með hverjum tíma.
- Finnst þér munur á kenning'
unni?
- Já, það kann nú að vera. Me
hættir nú alltaf til að vera dálif1
sagnfræðilegur.
En við höfðum aldrei flutt neine
messu, áður en við fórum út í PreS.»
skapinn og litlar leiðbeiningarfeng'
í bókhaldi og öðru slíku. við urðo
sjálfir að fikra okkur áfram. Ég 9
sagt ykkursmá dæmisögu til gama