Kirkjuritið - 01.09.1978, Qupperneq 56
HELGA ÞÓRARINSDÓTTIR:
w w
UPPHAF SPIRITISMA AISLANDI
Ágrip af sögu spíritismans
1
Upphafsmann nútíma andatrúar má
fyrst og fremst telja Svíann Emmanú-
el Swedenborg (1688-1772). Hann
átti frá ungum aldri til dauðadags sí-
fellt í samtölum við anda, þ.á.m. Lút-
her og Melanchton, og fræddist um
margt. Áleit hann sig vera verkfæri
guðs. Samkvæmt kenningum Swed-
enborgs eru allir andar, góðir sem ill-
ir, framliðnir menn. En hann var mót-
fallinn því að hver og einn fengist við
þessa hluti, því að margir andanna
væru hættulegir og menn ekki al-
mennt nógu þroskaðir andlega. Eftir
dauðann eru framliðnir fyrst í milli-
bilsástandi, enn með hugann við
jörðina og geta komizt í samband við
lifandi fólk gegnum manneskjur, sem
gæddar eru sérstökum hæfileikum.
En vilji menn tala við andana verður
„andafar" þeirra að vera með sér-
stökum hætti. Má sjá af lýsingu
Swedenborgs að sá háttur er hið
sama og leiðsla (trance) (B. J.: Anda-
trú og dularöfl). Eftir daga Sweden-
borgs skiptust áhangendur hans að-
allega í tvennt. Annar hópurinn trúði
því að dularfull fyrirbæri væru af
völdum anda, þ.e. hreinir andatrúar-
214
menn, en hinn áleit þorra fyrirbrigð-
anna ósvikinn, en leitaðist við að
rannsaka þau og skýra á vísindalegan
hátt. Nokkrir miðlar, fyrst og fremst
Andrew Jackson Davies, sem margir
telja föður nútíma spíritisma, spanna
tímabilið milli Swedenborgs og at-
burðanna í Hydesville, en andatrúar-
menn vorra daga telja þennan banda-
ríska smábæ vera vöggu spíritism-
ans, og fæðingarstundina kvöldið 31 •
marz 1848.Þá tóku högg og önnur
kynjahljóð að heyrast í húsi nokkru
þar í bæ, í herbergjum tveggja dætra
húsráðanda, 14 og 11 ára, en þaer
urðu síðar heimsfrægir miðlar, Fox-
systurnar. Kom í Ijós að hið ó-
þekkta afl gat svarað spurningum
með höggum og reyndist vera andi
framliðins manns sem sagðist hafa
verið myrtur og dysjaður í hús-
inu fimm árum áður. Fundust leifar af
mannslíki, er leitað var eftir forsögn
andans. Högg, barsmíðar og andar
fylgdu systrunum hvert sem þærfóru.
og tóku hæfileikar þeirra nú ör-
um framförum. Var þeim tjáð,
þessi fyrirbæri væru engan veg-
in tengd þeim einum, og mundu