Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 58

Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 58
svefni þar til lúðurinn gellur á efsta degi, og hlaut því að vera um aðrar andaverur að ræða. Frá sjónarmiði kirkjunnar voru skoðanir einnig mjög skiptar. Sumir álitu það hina mestu blessun sem hent gæti kristna trú, sem átti í vök að verjast í spilltum og vantrúuðum heimi, ef spíritisminn sannaði fram- haldslíf eftir líkamsdauðann og þar með sjálfa grundvallarsetningu kirkjunnar, upprisu Krists. Þá myndi spíritisminn að auki brúa bilið milli gömlu og nýju guðfræðinnar, þegar skýra mætti út ýmsar kynjasögur úr ritningunni frá nýju sjónarhorni. En nýja guðfræðin var stefna, sem þró- azt hafði frá biblíugagnrýninni á síð- ari hluta 19. aldar og var undir áhrif- um af hinni öru framþróun vísind- anna, ekki sízt þróunarkenningu Darwins. Nýguðfræðingar héldu því fram að túlka mætti ýmislegt í biblí- unni á nýjan og vísindalegan hátt, jafnvel afneita sumu í krafti nýrra uppgötvana. Aðrir bentu þó á, að ekki sannaði það heilagleika Krists ef hvertsmámennið léki eftir upprisuna. Enn var bent á, að í ritningunni er mönnum bannað að hafa fréttir af framliðnum; sömuleiðis að spíritistar viðurkenna ekki friðþægingardauða Krists. Þó munu sterkustu rökin trú- arlegs eðlis þau, að ef farið er að byggja trúna á grundvelli röklegra sannanna, er hún ekki lengur trú, heldur vísindi. Hér væri því farið gjör- samlega öfugt að hlutunum — hrein trú sem ekki spyr sannana sé afstaða hins sannkristna manns. Um þessi efni er ennþá deilt, a. m. k. innan íslenzku kirkjunnar, og verð- 216 ur ekki farið lengra út í þá sálma. Setning Arthurs Conan Doyle, eins á- hrifamesta útbreiðanda spíritismans, sýnir vel afstöðu andatrúarmanna sjálfra: „Spíritisminn er trúarbrögð fyrir þá sem' finnst þeir standa fyrir utan öll trúarbrögð, þarsem hann aft- ur á móti styrkir stórlega trú þeirra sem þegar eiga trúarbrögð fyrir“. Spíritisminn berst til íslands 1 Spíritisminn sem hreyfing náði furðu seint til íslands, ekki fyrr en eftir aldamótin 1900, og var því orðinn hálfrar aldar gamall. En það sem meiri undrun vekur að órannsökuðu máli er hversu fljótt hann greip um sig, og þá helzt meðal fyrirfólksins. og hve almennur áhugi manna á þessum efnum erenn þann dag í dag. þar sem víðast hvar erlendis er ein- göngu um einangraða rannsóknar- hópa að ræða, en allur þorri fólks rekur upp stór augu eða skellihlátur ef einhver staðhæfir að hann trúi á miðla. Það er hætt við að uppi fótur og fit ef aðalútavarpsstöðvar i Evrópu eða N-Ameríku auglýstu skyggnilýsingar rétt eins og stór- bingó, og gætu auk þess fært þ&r fréttir að færri hefðu komist að en vildu. Við nánari athugun koma þó 1 Ijós nokkrir meginþættir, sem hver um sig stuðla aö þróun mála hér- lendis: í fyrsta lagi má segja að ríkjandi andrúmsloft í trúmálum hafi verið furðulegur samsetningur af áhuga'

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.