Kirkjuritið - 01.09.1978, Síða 74

Kirkjuritið - 01.09.1978, Síða 74
þar sitt hverjum, allt eftir uppeldi, dómgreind og menntun. Ýmsirskólar og flokkar byggðu stefnuskrársínará mismunandi sjónarmiðum í þessu efni. En að baki þeim öllum bjó háleit hugmynd um það, að Guð sjálfur myndi setjast á valdastól, og hinn lif- andi Guð myndi þaðan í frá ríkja þjóð- höfðingi, nærgöngull og máttugur. Með þessari hugmynd átti heldur betur eftir að kvikna nýtt líf. Nú kom Jesús til Galíleu, prédikaði og sagði: ,,Tíminn er fullnaður og guðsríki nálægt." Engan þarf að undra, þótt margur hafi skilið hann svo, að hann ætti við ríki Davíðssonar og þær gagngeru breytingar, er fylgja myndu. Sá misskilningur loddi við starf hans allt til enda, er hann var líflátinn sem „konungur gyðinga". Rangur skilningur var það, og hann mjög svo örlagaríkur. Þó getur mis- skilningur haft sannleika í sér fólg- inn, þegar skipt er um sjónarhorn. Svo var og hér. Jesús fór ekki eftir neinum flokkslínum. Hann horfði fram hjá þeim öllum og á þá grund- vallar hugmynd, að ,,Guð er nálæg- ur“. í allri sinni tign og öllu sínu veldi kemur Guð til fundar við manninn, karla og konur, og væntir andsvars af þeim. Og eins og vér höfum séð, gæddi hann þessa hugmynd nýjum styrk og skýrleika. En það væri rangt að ætla, að hann hafi túlkað hug- myndina um guðsríkið svo, að í munni hans hafi hún einvörðungu merkt líf einstaklingsins hið innra. Þótt hann stæði að sumu leyti utan við, var hann engu að síður þátttak- andi í þjóðlífinu. Þegar hann fagnaði yfir því að óvinsæll tollheimtumaður 232 „gjörði iðrun“, þá kallaði hann hann ,,son Abrahams“.2 Og hann talaði um ,,dóttur Abrahams“.3 þegar hann vildi ekki una því að vera átalinn fyrir að lækna kryppling á hvíldardegi- Það segir sína sögu, hvernig Jesús tekurtil orða í þessum dæmum. Þetta fólk er að vísu óendanlega dýrmætt í hans augum sem einstaklingar, en það er einnig meðlimir þjóðar. A- stæður þess eru tengdar því sögu- lega samfélagi, sem það tilheyrir ásamt Jesú sjálfum, og „hjálpræði' þess, bæði líkamlegt og andlegt. stendur líka í sambandi við heilj mannfélagsins í heild. Jesús talaði um það ídæmisögu, ertýndursauður finnst aftur, og gerði mikið úr því hve dýrmætur hann var, þessi eini sauð- ur, sem villtist I burtu; það var til „týndra sauða af húsi ísraels'1.4 sem hann sagðist vera sendur. Það ®r engum vafa undirorpið, að honum var það ekki síður Ijóst en hverjum öðrum lærimeistara gyðinga, a® samkvæmt ævafornri sagngeymd átti ísrael að vera þjóð Guðs, þar sem hann var konungur, og að hun gegndi veigamiklu hlutverki í því a^ gjöra guðsríkið að veruleika. Þessa erfikenningu höfðu spa' menn Gamla testamentisins gróður- sett kyrfilega í hugarheim gyðinga' þjóðarinnar. Þeir héldu því fastlega fram, að Guð væri að verki í sögunni fyrir atbeina þjóðar, sem helguð værj markmiðum hans: „lýður Guðs . guðlegt sambandsríki. Þessi þjóð var ísraelsþjóðin. Þetta var hennar raison d’étre. Þessi hugsun fólst og í nafn- inu ísrael, eins og það var notað um þessar mundir. Landfræðilega °9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.