Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 49

Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 49
heldur víkja að afskiptum Hall- 9nms biskups Sveinssonar af anda- trúnni á þessum fyrstu árum hennar hérlendis. 2 ^allgrímur var móðurbróðir Haralds Níelssonar, og dvaldist Haraldur á heimili hans á námsárum sínum í Reykjavík. Einnig var Hallgrímur mágur Björns Jónssonar. Þegar hér var komið sögu var hann orðinn mjög farinn að heilsu (d. 1908). Virðist sem hann hafi fljótlega fengið áhuga á rr'álefninu, enda haft góðar aðstæður að kynnast því fyrir tilstilli Haralds fraendasíns. I bókinni Kirken og den psykiske forskning segir Haraldur á bls.25: "Biskup lánaði okkur iðulega vinnu- herbergi sitt, og þar voru haldnir margir miðilsfundir; þar náðum við einnig beztum árangri. Biskupinn sJálfur sagði einu sinni við mig ..spontant": ,,Nú fyrst get ég skilið margt í Nýja Testamentinu sem var már áður hulið“ “ (þýðing Helgu or.). — En leikurinn barst brátt út fyhr vinnustofu biskups. 1 Þjóðólfi 16. marz (LVIII.11, 1906) ®pyr ..Örvar-Oddur" sr. Hallgrím veinsson hvort rétt sé hermt að 'skup sé bendlaður við kukl, og láti 'hdriða miðil lækna sig meö handa- yfirlagningu. Heimtar hann svar (þetta r Um sama leyti og lækningatilraunir ndriða á Jóni í Stóra-Dal). Árni Árna- s°n frá Höfðahólum ítrekar spurn- 'n9una í Þjóðólfi (LVIII.46, 19. okt. 06) og heimtar svar, ella verði land- Jórn að athuga málið. í viðbæti, sem hnýtt er við grein þessa, líkast til af ritstjóra, er sagt að þegar andatrúar- farganið hafi verið sem mest veturinn 1905-1906 hafi verið haldinn fjöl- mennur fundur og samin ályktun, enda muni Dómkirkjuprestur (Jó- hann Þorkelsson) hafa farið heim til biskups en komið aftur jafnnær. Þá hafi um sama leyti verið skorað á biskup að hann bæri af sér ásakan- irnar (skv. því er fundurinn líkast til í marz — apríl), en ekkert hafi gerzt. Stjórnin muni sjálfsagt ekkert gera, því að hún líti svo á að þessi heims- kunnar alda sé að ganga hjá, en slæmt hafi það verið í fyrravetur þeg- ar jafnvel kennarar prestaskólans og ritstjórar Kirkjublaðsins hafi virzt ætla að ánetjast, en nú muni þeir læknaðir, og líklega biskup einnig. Fróðlegt væri að grafa meira upp um fund þennan, því að ekki fundust fréttir af honum í blöðunum. En í Frækorninu 15. apríl (VII, 14, 1906) kemur fram áskorun frá Framfarafé- laginu (samþykkt á aðalfundi þess 1. apríl í Bárubúð, en aðal-fundamálin voru Andatrú og Þingmannaheimboð konungs (Reykjavík VII, 14, 31. marz.)) til sóknarnefndar Þjóð- kirkjusafnaðarins í Reykjavík þess efnis, að formaður sóknarnefndar kalli saman safnaðarfund til að ræða orðróm um að biskup sé að einhverju leyti orðinn andatrúarmaður, og gera ákvæði þar að lútandi. Er hér e. t. v. komin skýringin á áðurnefndum fundarhöldum. Ekki liggja fyrir heimildir um við- brögð biskups við þessum áskorun- um, enda var hann orðinn svo til heilsulaus og tæpast maður til að 287

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.