Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 8

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 8
6 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. gat engu svarað þessari óttalegu kröfu, Don Antoníó gekk nú að vöggunni. «En þér vitið nú samt, að sonur minn hef- ir ekkert gert yður.« »Hver segir yður, að eg ætli að gera hon- um nokkuð ilt? Eg skal segja yður, hvað ng hefi í huga með hann, og dæmið svo. F*að er engin eftirsjá í því fyrir hann að missa af þeirri tign í heiminum, sem hann veit ekkert um, ekki sízt ef eg sæi svo um, að enginn maður, ekki einu sinni þér sjálf, væri hjá hon- um til að minna hann á það.» »Hvað?« æpti greifafrúin, »þér ætlið jaó ekki að skilja okkur að? Æ nei, þér megið ekki gera það!« sagði hún og rétti hendurnar fram og féll biðjandi á hné. Don Antoníó glotti og svaraði engu. *Heldur gréifafrúin af Medíana að eg hafi ráðizt í þetta tiltæki mitt til þess að láta dár- ast af bænum hennar? Nei, ætlun minni skal eg fram koma, ef,« sagði hann, og dró rýting úr belti sér og benti með honum á vöggu Fa- bíans,« óþarfa fyrirstaða neyðir mig ekki til þess að misþyrma þessu barni — og þá verð- ur það yður að kenna.« «Ó, guð minn góður,« veinaði greifafrúin, «ætlar þú að láta það viðgangast? Ætlar þú engan að senda mér til hjálpar?« »Engan orðafjölda, við skulum hraða okk- ur að þessu, frú mín; en trú mér til, guðs réttvísi er ekki meira virði, þegar hún sefur, heldur en mannanna, þegar hún er blind.» »Vel getið þér neitað réttvísi mannanna,« svaraði greifafrúin, «en guðs réttvísi, sem þér dirfizt að spotta, skal óefað hitta yður, jafnvel elta yður út í auðnir og eyðimerkur, sem eng- inn mannlegur fótur hefir stigið, og vekja yð- ur þar sakarábera, dómara og böðul.« »Kraftaverkin eru ekki til nú á dögum.* svaraði Don Antoníó og hló við. «Ennúskul- um við lúka málunum; barnið að tarna skal ekki sofa undir þaki feðrasinna.« »Guð varðveiti það frá því,» sagði Donna Lúísa, og beindi til guðs svo heitri bæn, sem mæðrunttm einum er auðið að biðja. Svo féll hún á hné fyrir hinum harðlynda manni og mæiti: »Antoníó! eg þekti yður áður að því að vera göfugmenni og prúður í lund — ætlið þér nú að flekka sálu yðar með glæp? Æ nei, þér eruð víst bara að hræða mig, er ekki svo?« »Hræða yður? Nei, langt frá því, mér er full alvara; en tíminn líður, og félögum mín- um fer að leiðasl.« Greifafrúin skildi á þessu, að hér var eng- rar vægðar von. Hún var ráðþrota og hug- stola, og gerði alt í blindni, sem hann skipaði henni að gera, þessi miskunarlausi niaður. Hún gekk að vöggunni, til þess að taka upp barn- ið og klæða það, þegar hann skipaði henni það. Henni datt í hug að reyna að kalla á hjálp, en þá blikaði hnífur hans fyrir augum hennar. Hún gekk niðurlút að vöggunni og strauk lokkana frá andliti barnsins með móð- urlegri ást og blíðu. Fabian vaknaði við, en er hann sá að það var móðir hans, brosti hann aðeins í svefnrofunum og sofnaði aftur. Greifa- frúin leit í örvæntingu á kvalara sinn, en þar var ekkert nema harkan; hendur hennar féllu niður máttvana. Don Antoníó hvesti á hana augum. Hún reif sig upp og beygði sig yfir barnið og kysti það; það vaknaði aftur við, leit upp, en var svo syfjað að það sofnaði aftur. En þá hnipti Don Antoníó ómjúklega við því, og við það og gustinn inn um gluggann, vaknaði það til fulls, sá þar ókunnugan mann inni og móður sína flóandi í tárum; þá fór hann að verða hræddur og grúfði sig grátandi upp að brjósti móður sinnar. Svo fór hún að klæða drenginn, en fór svo hægt og dró svo tímann, sem hún gat. En engin hjálp barst að úr neinni átt. Hún hélt þetta ekki út lengur, þegar hún var búin að klæða það, kysti hún það í síðasta sinni, og féll svo í ómegin á gólfið. Barnið lá snökt- andi hjá henni. Don Antoníó skeytti hvorugu, en skaut lok- unni fyrir hurðina. Síðan opnaði hann skrif- borð hennar, þeytti öllum gripum hennar út

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.