Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 17
GULLFARARNIR. 15 starði um stund ofan í jörðina fyrir fótum sér eins og hann væri viðutan. Svo leysti hann vatnsbtlginn frá söðulboganum, opnaði munn piltsins og gaf honum smátt og smátt ögn að drekka. Eftir litla stund stundi pilturinn þungan. Hann fór að anda djúpt, og litlu síðar opnaði hann augun og horfði forviða á björgunarmann sinn. Eg þakka yður fyrir, að þér hafið látið yður ant um mig,» gat hann loks tautað með mestu fyrirhöín. »Kristileg skylda! kristileg skylda!» svaraði Kúkilló eins og hann vildi eyða þessu tali. En hvernig í fjandanum eruð þér kominn hingað. - »Já, hvernig er eg kominn hingað?« Unglingurinn reis nú upp við olboga og fcr að hugsa sig um. Og eftir því sem hann hugsaði lengur fór hann að smátala. «Rað er langt síðan eg misti föður minn, cn móðir ntín er nýdáin, úr köldusótt. — Já, svo er það. Eg jarðaði hana svo. Eg er bláfátækur, og lagði svo af stað tii hasíendunnar del Venadó, til þess að koma mér þar í vinnu. — Svona var það. — Nú man eg það alt svo glögt. — Eg veiktist líka af köldusótt. — Eg misti vegarins í öræfunum, vatnsbelgurinn minn sprakk af slysum. — Hesturin minn ör- magnaðist af þorsta og datt dauður niður. Eg drógst áfram þangað til eg hneig niður aflvana.» Kúkilló gaf honum aftur að diekka. «Nú, þér eruð brjóstumkennanlegur, dreng- ur minn. Og hafa foreldrar yðar ekkert látið yður eftir nema þennan hest, sem nú er dauð- ur, og garmana, sem þér standið uppi í?« Guilfarinti beið með æstri óþreyju eftir svari unglingsins. En hann hristi aðeins höfuðið. «Ekkertann- að,« sagði hann, »en endurminninguna um alt það góða, sem þau gerðu mér, og virðinguna fyrir nafni sínu«. í sama bili frísaði hesturinn, sem hjá þeim stóð, Og færði sig nær, reisti faxið og neri sér upp við eiganda sinn, eins og hann vildi leita sér verndar. Nokkrir gul lúlfar ýlfruðu í fjarska, en skamt frá heyrðist púma*) reka upp hás smáöskur en rétt á eftir drundi við sterkt öskur í tígri;**) það var þegar orðið koldimt. Kúkilló spratt á fætur. »Hrækvikindi þessi eru að rífast út af hestinunr yðar. Rað þeirra, sem verður að þoka frá, gæti vel fengið lyst á öðrunr hvorum okkar,« sagði hann kvíðafull- ur og stökk á bak hesti sínum. Eg hefi ekki nema eina byssu, og þér eruð vopnlaus.» Unglingurin staulaðist á fætur með veikuni burðum og stakk hendinni í barm sinn. »Eg hefi rýting,» sagði hann. «Rað er ekki nóg. Fljótt nú! Á bak fyrir aftan mig!» Pilturinn hlýddi, og hesturinn brokkaði af stað þótt nokkuð þungt væri á honum. Oskur villidýranna lét æ hærra, þar sem þau voru að rífast út af bráð sinni, og eymdi Iengi eftir af því, þangað til byssuskot dundi við og öskrin hættu. Kúkilló hrökk saman, en sagði þó, Iíklega til að hughreysta sjálfan sig: »LíkIega hefir einhver amerískur veiðimaður ónáðað þau; þeir eru hér oft á reiki og koma til Arispe til þess að selja otra- og bjóra-be!gi.» Svo riðu þeir áfrarn þegjandi. «Hvert eruð þér að fara með mig?« sagði þá pilturinn eftir litla stund. »TiI nokkurra vina minna, sem ætla að verða við tjörnina í nótt, og halda svo áfram til hasíenda del Venadó á morguit — og þér sögðust áðan einmitt ætla þangað, til þess að leita yður atvinnu — eða var ekki svo? En eg skal nú ráða yður til nokkurs, þar sem þér getið haft ofan af fyrir yður með hægra móti, og fengið meira upp úr, en þér þurfið með. Hafið þér ekki heyrt talað um gullfara- leiðangurinn mikla, sem ætlar að leggja af stað frá Túbak að fám dögum liðnum, og halda hér inn í landið?» «Nei.« *) Amerískt Ijón. **) flekkótti Jagúarinn er kallaður tígur í Mexikó og Suður-Ameríku.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.