Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Side 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Side 23
PRESTSSETRIÐ. 21 PRESTSSETRIÐ. EFTIR ALEX. KJELLAND. Pað var eins og vorið ætlaði aldrei að koma. Pað voru sífeldir norðannæðingar og næturfrost allan aprílmánuð. En um hádaginn var sólarhitinn svo mikill, að sumar stóru flug- urnar léttu dvalanum og flugu suðandi í sól- skininu; og lævirkinn söng hvellum rómi, og fullyrti að það væri komið hásumar. En lævirkinn er sú óáreiðanlegasta skepna, sem til er undir sólinni. Pó að það væri grimdarfrost á næturnar, þá var hann búinn að steingleyma því, undir eins og fyrsti sólar- geislinn fór að verma hann; og þá flaug hann syngjandi hátt í lofti uppi yfir heiðinni, þang- að til hann mundi eftir því, að hann var glor- hungraður. Svo fór hann smám saman að renna sér niður á við í stórum sveigum, söng í sífellu, og sveiflaði vængjunum eftir hljóðfallinu. Vepjan trítlaði eftir skorningunum, og drap höfðinu við og við, eins og það væri hik á henni. Hún Iagði ekki mikinntrúnað á það,sem lævirkinn sagði, og tísti ofurgætilega: «Bídd-u, bídd-u!» Tvær grænhöfðaendur voru að busla á mýr- arpolli nokkrum, og sú eldri sagði, að vorið kæmi ekki fyr en það rigndi. Pað var komið langt fram í maí, og eng- jarnar voru enn þá gular; það var ekki farið að grænka nema í einstaka holti móti sólu. En ef vel var aðgætt, sáust ótal smájurtir í gras- rótinni; sumar voru allgildvaxnar, en sumar voru örmjóar, eins og það væru grænir nálar- oddar, sem gægðust upp úr moldinni. En norðanvindurinn næddi um ungu spírurnar svo kaldur og hryssingslegur, að þær urðu gular að ofan, og rar eins og þær langaði að skríða aftur niður í moldina. En þærgátu það ekki, og biðu svo þar sem þær voru komnar. Þær þokuðu sér aðeins ofurlítið upp á dag; inn, meðan sólin var hæst á lofti. Grænhöfðaöndin átti kollgátuna. Pað þurfti að rigna áður en vorið kæmi. Og loksins köm rigningin — fyrst var hún köld, en svo hlýnaði hún smám saman, og þegar úpp stytti, fór sólin að skína í allri sinni dýrð. Pað var varla hægt að þekkja hana; hún var orðin svo breytt. Hún skein og hlý- jaði loftið allan liðlangan daginn, frá morgni til kvölds, svo að næturnar urðu hlýjar og döggríkar. Pá var uppi fótur og fit. Alt var orðið á eftir tímanum, og nú þurfti að vinna það upp aftur. Blöðin brutust út úr brumhýðinu, svo að það heyrðist ofurlítill smellur, og allir frjóangar tóku óðum að vaxa, og skaut þeim svo fljótt í allar átlir, að það var eins og þeir væru að sprikla, og spyrntu út frá sér grænum fótunum. Engjarnar urðu óðara marglitar bæði af blómum og illgresi, og lyngholtin niður undir sjónum fóru að lýsast. En guli sandurinn meðfram ströndinni hélt einn sama litnum. Hann hafði ekki annað en melinn að prýða sig með. Hann safnaðist bara saman í hóla, og lét svo lin melstráin blakta þar eins og græna fána, sem sáust langar leiðir. Sendlingarnir hlupu aftur og fram um fjör- una, og báru fæturna svo títt, að það var til að sjá eins og þeir rynnu áfram á smátentum kambi. Mávarnir stikluðu frammi í flæðarmál- inu, þar sem bárurnar skoluðu á þeim fæturna við og við. Þeir voru alvarlegir á svipinn, drógu hálsinn saman og settu fram kviðinn, eins og kerlingarnar gera, þegar færðin er ill. Tjaldurinn í þröngu buxunum sínum, svarta aftursniðna kjólnum og hvíta vestinu, stóð graf- kyr og studdi saman hælunum. »Ti bælti bæ!» hrópaði hann og hneigði sig hvatlega, svo að kjóllöfin flöksuðu upp á bakið.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.