Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 3
TENGDÁDOTTIRIN. Skáldsaga eftir E. JUNCKER. Framh. Elísabet brosti. »f*að má heyra á yður, að þér hafið dvalið langvistum á hafinu herra skipstjóri,* sagði hún, »því annars hefðuð þér ekki drýgt tvær syndir í sömu andránni.* »Hvaða syndir hef eg drýgt, náðuga greifa- dóttirpc spurði hann. »í fyrsta lagi hafið þér drýgt þá synd að tala um alvarleg málefni við kvennmann, og í öðru lagi hafið þér drýgt þá synd að láta til- finningar yðar í ljósi. F*að er ekki þeirra háttur er ávalt dvelja á Iandi. Við roðnum, ef við tölum skáldlegum og líkingafullum orðum og skömmumst okkar fyrir að tala um annað en það sem gerist dagsdaglega. Pér sögðuð um daginn, að sjómenn væru hjátrúarfullir. Var það satt?c »Flestir þeirra eru hjátrúarfullir,« sagði hann. »Eruð þér líka hjátrúarfullurpc Eg, náðuga greifadóttir ? Eg trúi á það góða og engla í mannsmynd — og sjálfan mig. [Jað er víst venjulega nefnd hjátrú.c »F*að er trú, sein kennir manni að treysta sjálfum sér, herra skipstjóri, en eg er hrædd um, að jómfrú Eschendorf frændkonu minni finnist hana vanta kristilega auðmýkt og und- irgefni.c Hún þagnaði og leit niður fyrir sig. F*að var eitthvert leiftur í þessum augum, sem kom henni til að þagna. í fyrsla sinni nú fanst henni, að hún sjálf væri fákunnandi og sig skorti einurð. Von Berge, Iandráðið, sat beint á móti N. Kv. XI. 5.-6, henni við borðið og gaf nákvæmar gætur að öllum svipbreytingum í andliti hennar. »Hvað ætlið þér nú að starfa í sumar?c spurði frú von Massow gamla von Berge. »Eg hefi hugsað mér,« sagði hann, »að gróðursetja ný tré í garðinum mínum og gera nýtt svínagerði. Ef þér hafið nokkra ánægju af að skoða svínagerðið, þegar það er full- gert, er yður velkomið að koma yfirum til mín einhverntíma, þegar tími yðar leyfir. Eg veit að yður þykir svo gaman að skoða þesskonar byggingar.c »Hver hefur sagt yður það?c spurði hún undrandi. »Núna í morgun sá eg yður sjálfur hlaupa um allar fjárréttirnar niðri á Saltfióanum með honum frænda mínum.c »Petta er mesta óráð, Gúnther.c sagði hann við greifann. »Hvað ætlar þú að gera þegar haföldurnar velta hvítlöðrandi yfir Salt- flóana og eyðileggja alt, bæði lifandi og dautt?« »Eg ætla fyrst að sjá þær koma, frændi,« svaraði Gúnther. »Vonandi lifir hvorugur okk- ar það, að hafið flæði yfir Saltflóana.c »Pað er nú varla mikil hætta á, að við munum drukkna,« sagði von Berge, »en hjarð- mönnunum getur verið hætta búin, en það stendur víst ölium á sama, hvað um þá verður.« »Pað væri hræðilegt,« sagði Margrét angist- arfull, »ef sjórinn flæddi yfir Saltflóana og slys yrði að. F*að væri miklu betra, Gúnther, að hætta við þetta alt saman áður en ógæfan steðjar að.« 13

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.