Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 44
138 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. síður hinumegin en hérna megin grafarinnar. Og vér getum því alveg eins treyst þeim lögmál- um, sem höfundur tilverunnar hefur sett þar, eins og hér, og þurfum því ekki að kvíða framtíðarörlögum vorum né ástvina vorra. IV. Himnariki, Öll trúarbrögð halda því fram að til sé til- verustig, er þau nefna himnaríki,"og kenna jafn- framt, að menn hljóti himneskt sælulíf eftir dauðann, ef þeir lifi vel hér í lieimi. Múhameðs- trúar menn og kristnir skoða hina himnesku sælu sem laun, umbun eða náð, sem guð veiti þeim, setn honutn hafa verið þóknanlegir. Aftur á móti kenna það flest önnur trúarbrögð, að hin himneska sæla sé eðlileg afleiðing af góðu líferni, og því hinu sama höldum vér guðspek- ingar fram. En jafnvel þótt öll trúarbrögð lýsi dýrð himnaríkis í skrúðmiklu og skáldlegu máli, þá hefur þeim þó ekki tekizt að lýsa henni svo rækilega, að menn hafa yfirleitt þótst þess sannfærðir að þar væri um veruleik að ræða. Alt sem ritað hefur verið um himna- ríki, virðist vera svo öfgakent, að það Iíkist fremur æfintýrum eða kynjasögum, en því sem menn geta búist við að hafi við einhvern sann- leika að styðjast. Auðvitað viljum við trauðla kannast við, að svo sé um þær lýsingar af himnaríki, sem vér höfum heyrt um, síðan við vorum í bernsku. En ef vér heyrum þær lýs- ingar, sem haldið er fram í öðrum trúarbrögð- um, þykjumst vér sjá á þeim æfiníýrablæinn. í helgiritum Brahma- og Búddha-trúarmanna getur að lesa skáldlega lýsing á himnaríki, og þar er sagt, að það séu víðáttumiklir ald- ingarðar, og viðirnir í þeim séu allir gull og silfurmeiðir og aldinin dýrmætir gimsteinar. Og vér mundum ekki geta að þvf gert að brosa að slíkum sögum og aumkva Brahma- og Búddha- trúarmenn fyrir einfeldnishátt þann, að láta kenna sér slíkt, ef vérgætum ekki alveg eins búizt við, að þeim mundi þykja viðlíka ótrúlegt að himna- ríki sé eins og oss hefur verið kennt, stórborg upp á himinhvelfingunni nreð gullstrætum og perluhliðuin. Sannleikurinn er auðvitað sá, að lýsingarnar á hiinnaríki fá á sig þennan æfin- týrablæ af því að höfundar þeirra hafa allir reynt að lýsa því, sem þeim hefurekki verið unt að lýsa með orðum. Indverskir helgiritahöf- undar hafa vafalaust séð hina skrautlegu aldin- garða konunga í Austurlöndum, þar sem hag- lega gerðir gull- og silfurmeiðir og dýrindis gimsteinar í aldinalíki voru enganveginn sjald- séð garðprýði. Hinsvegar hafa hinir kristnu rit- höfundar ekki þekt neitt slíkt. Hann hefur átt heima í fagurri borg — að líkindum í Alex- andríu. Og þá er hann hefur viljað koma sam- tímismönnum sínum í skilning um fegurð himnaríkis, hefur hann gripið til þess að líkja því við mikla borg, sem væri auðvitað gerð úr margfalt dýrara og fegurra efni en borgin, sem hann átti heima í. Reir hafa sem sé allir reynt að gefa mönnum einhverja hugmynd um himnaríki með því að líkja því við það, sem þeir þektu tilkomumest hér í heimi. En það eru fleiri en helgiritahöfundarnir sem hafa séð og athugað þetta dýrlega tilveru- stig. Og þeir hafa sumir hverir reynt að lýsa því, jafnvel þótt þeim hafi auðvitað ekki tekizt það betur. Meðal þeirra eru nokkrir af oss guð- spekisnemendum. I sjöttu handbók vorri hefi eg gert eina slíka tilraun. Vér Iíkjum nú ekki dýrð og fegurð himnaríkis við gull og ger- semar heldur miklu fremur við töfrafegurð vor- loftssins um sólarlagsbil, því að sú fegurð virðist oss himneskari en flest annað, sem séð verður á þessu tilverustigi. En vér sem höfum átt kost á að sjá og athuga þetta óumræðilega- dýrðlega tilverustig, vitum best, að oss hefur ekki tekizt betur að lýsa því en helgiritahöf- undunum. Reir sem lesa lýsingar vorar á himnaríki, munu ekki fá gert sér rétta hug- mynd um það fyr en þeim gefst kostur á að sjá það sjálfir. Himnaríki er engin ímyndun eða draumur heldur dýrlegur veruleiki. En til þess að geta

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.