Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 50
144 NÝJAR KVÓLDVÖKUR. Ketil velgja konurnar, kaffið svelgja forhertar, ófriðhelgar alstaðar, af því fjelga skuldirnar. Vísan flaug á svipstundu uni sveitina og þótti smellin. Ýmsum nágrannakonum Hans sveið vísan og ein þeirra orti á móti: Hans í Hvammi hefur vamma tungu; áfram þrammar armgleiður útá skamma-torfærur. En það sagði Hans kunningjum sínum að sér þætti verst, að í vísunni skyldi standa »út á« en ekki »yfir skammatorfærur«. Lengra nær frásögn Pálma ekki. Löngu síðar, þegar Prúður Jónsdóttir í Mið- húsum f Blönduhlíð heyrði vísuna kvað hún: Bændur svína brúka sið: belgja vínið sinn í kvið, skynsemd týna og skemma frið skæla trýnið út á hlið. Jón Asgeirsson frá Pingeyrum, hestamaður- inn góðkunni, gisti einu sinni í Valadal hjá Pétri Pálmasyni föður Pálma kaupmanns á Sauðárkrók, og þeirra bræðra. A leiðinni heim að bænum kvað Jón þetta við samferðamenn sfna. Við skulum koma í Va'adal, vænan hitta Pétur. Mínum góða gjarðaval gefur enginn betur. Reið Jón svo heim, og bað Pétur bónda að hlynna vel að reiðhesti sínum, og þá kvað hann þetta: Svo að sloti sultinum, sárum þrotin trega, reiðar Gota gullfögrum geíðu notalega. Einu sinni bað Jón mann nokkurn að út- vega sér reiðhest »Hverja kosti á hann að hafa?« spyr maðurinn. Jón svarar: Stutt sé bak, en breitt að sjá, brúnir svakalegar. Augun vaki ærið smá; eyrun hrakin til og frá. Leggja nettur liðasver, lag sé rétt á hófum : harður, sléttur, kúftur hver, kjóstu þetta handa mér. Eitt sinn, sem oftar fór Jón af Blönduósi. Hafði þó fengið vel í staupinu, og sté á bak hjá Sæmundsens búðinni, sló 'í klárinn og kvað við ranst: Héðan glaður held eg frá húsum Mammons vina, skuldafrí eg skelli á skeið um veröldina. í annað skifti var það, að Jón datt af baki og hruflaði sig á nefinu. Mætti hann þá Jóni Porvaldssyni á Geirastöðum, skáldmæltum manni, hispurslausum í orðum og athöfnum. Pegar Jón Porvaldsson sá nafna sinn þannig útleikinn kvað hanti: Núna hrasað hefur sá, hér um fjas þó lini. Nú er Iasið nefið á nafna, glasavini. Hinn svaraði þegar: A skáldafundum framhleypinn fær sér stundum »pínu« Prátt hjá sprundum þaulsætinn, Porvalds kundur nafni minn. Jón á Geirastöðum var drykkfeldur, en kunni þó að stilla til hófs í því efni. Einu sinni keypti hann í sláttarbyrjun vín á tveggja potta tunnu. Notaði hann það í kaffið sitt á morgnana meðan það entist, og gaf kaupamanni með sér. Þegar þrotið var úr tunnunni kvað hann Slær til heljar unaðseld angurs éljastrengur, öls er beljan orðin geld, ei kann selja lengur. A efri árum sínum kvað Jón svo: Ellin skorðar líf og lið, legst að borði röstin. Eg er orðin aftan við ungdóms sporðaköstin. (Meira.)

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.