Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 37

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 37
ÓFERMDI DRENGURINN. 131 hann ofl grátið sig þreyttan, grátið sig langt burt frá allri æskugleði og barnsfögnuði. Hon- um datt í hug að hlaupa á dyr. En þá mundi hann eftir Halldóri og öllum áminningunum. Séra Björn blaðaði í kverinu aftur og fram, líklegast til að lofa Tuma að jafna sig. Loks spurði hann: »Geturðu sagt mér hver hefur skapað þig?« »Guð,« svaraði Tumi eftir langa þögn. »Já. Rað er rétt, en hefur hann ekki skap- að fleiri en þig, Tumi minn?« »Jú.« »Hvað fleira?« »HaIldór og Rauð og Skjöldu og . . og .. og . . « Tumi mundi ekki eftir fleiru í svipinn. Prestur brosti. »AIIann heiminn, barn I Alt sem við sjáum daglega, menn og skepnur og jurtir og sjó og land. — Pað er nú svo.« Tumi mundi ekki eftir að hafa heyrt þetta fyrri. Til hvers heldurðu að guð hafi þá skapað þetla alt saman?« »Til þess að eiga það,« Náttúrlega á guð heiminn. En manstu ekki eftir neinni grein, sem segir: »Og alt þetta skapaði hann sér til dýrðar og skepnum sínum til blessunar?« Pað mundi Tumi ekki. »Er guð þá ekki óumræðilega góður að hafa skapað þetta alt seman ?« »Jú stundum,« »Hvenær helzt?« »A sumrin.« »Pví þá á sumrin ?« spurði prestur. »Þá er altaf svo gott veður, mikið sólskin, ekkert myrkur.« »Nú. — Hverjum áttu alt það gott að þakka, sem daglega kemur fram við þig ?« »Halldóri,« svaraði Tumi hiklaust. En hver lætur Halldór gera það gott?« Við því þagði Tumi. Prestur varpaði öndinni mæðilega. Geturðu nokkuð sagt mér um Krist? Hver var það?« »Góður maður — fjarska góður maður.« »Mikið rétt! En var hann svona algengur maður, eins og þeir sem með honum lifðu á þeim tíma ?« » Steinhljóð. Hvað gerði þá Kristur helzt? Manstu það?« »Gekk á Genas . . . Gen . . .« Hvað ? Gekk á hverju ?« »Genas . . . Gekk á vatninu.« »Nú. Einmitt það. Já. Hann gekk á Gene- saret-vatni. Var það helzta starf Krists? Gerði hann ekkert fleira ?« Tumi rendi ráðaleysisaugum um alt húsið, eins og hann væri að Ieita þar að einhverju, sem Kristur hefði gert. Loksins stundi hann upp: »Hann blessaði ungbörnin.« »Já. Rétt er það. Hann blessaði ungbörnin. En blessaði hann þá enga fleiri? »Fariseana.« »Á . . . nú ertu á rangri leið. Farisearnir voru óvinir hans.« Presturinn þagði andartak. »Er nokkuð gott að líkjast Jesú?« Tumi þagði. »Er nokkuð betra að líkjast honum en einhverjum öðrum, t. d. Halldóri?« Nú var Tumi í vandræðum. Hann vissi að Kristur var góður. En það var nú raunar Hall- dór Iíka. Honum fanst því réttast að segja ekkert um það. Prestur sá að hann ætlaði ekki að svara. »Hver þeirra heldurðu sé máttugri, geti betur hjálpað þér, stutt þig í lífinu, gefið þér styrk í freistingunum?« »Halldór,« svaraði Tumi með mikilli vissu í röddinni. Séra Björn hristi höfuðið. Hann var að hugsa um að fara ekki lengra. Ójú, nokkrar spurningar enn. »Voru menn altaf góðir við Krist, elskuðu menn hann?« Tumi mundi eftir mönnum, sem höfði elsk- að hann, og öðrum sem höfðu hatað hann. En það hélt hann, að ekki gæti verið. Pað var víst bezt að þegja um það, 17*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.